Stríð Ísraels og Hamas 2023–
Þessi grein fjallar um atburði sem eiga sér stað núna. Innihald greinarinnar gæti af þessum sökum breyst þegar fram líða stundir. |
Stríð Ísraels og Hamas | |||||
---|---|---|---|---|---|
Hluti af átökum Araba og Ísraelsmanna | |||||
Gulur: Svæði rýmt af vígamönnum. | |||||
| |||||
Stríðsaðilar | |||||
Ísrael |
Hamas Hútí-fylkingin Jamaa Islamiya Amal-hreyfingin | ||||
Leiðtogar | |||||
Benjamín Netanjahú Yoav Gallant Herzi Halevi Yaron Finkelman |
Yahya Sinwar Ismail Haniyeh Mohammed Deif Marwan Issa X Saleh al-Arouri X | ||||
Fjöldi hermanna | |||||
529.500 | 37.000 | ||||
Mannfall og tjón | |||||
842 óbreyttir borgarar látnir 778 í herskyldu látnir 13.586+ særðir 251 í haldi eða rænt 1 týndur |
38.584+ látnir 6.000 - 20.000+ týndir 88.881+ særðir 9.312+ í haldi 1.900.000 á flótta |
Snemma morguns þann 7. október 2023, gerðu Hamas-samtökin og tengd samtök yfirgripsmikla árás gegn Ísrael. Á bilinu 2.500 - 5.000 eldflaugum var skotið á landið og um 1.000 vígamenn brutust gegnum landamæragirðingar á 27 mismunandi stöðum. Þeir þustu inn í landamæri Ísraels á pallbílum, mótorhjólum, gröfum og öðrum farartækjum og réðust á óbreytta borgara, hernaðar- og lögreglumannvirki. [1] Ástæða árásanna var skýrð sem „vegna vanhelgunar á Al-Aqsa-moskunni og dráp (á yfir 200) Palestínumönnum á Vesturbakkanum (á árinu 2023)“. Vígamennirnir rændu um 200 manns og fóru með yfir á Gasa-ströndina. 8. október var orðið ljóst af yfir 600 Ísraelsmenn lágu í valnum og 2.000 höfðu særst.
Ísraelska leyniþjónustan var gagnrýnd fyrir að hafa ekki fengið upplýsingar um árásirnar.[2]
Ísrael brást við með loftárásum á Gasa og jafnaði við jörðu byggingar, þar á meðal turn sem hafði verið notaður fyrir útvarpsútsendingar og var sagður geyma skrifstofur Hamas. Yfir 300 létust í árásum fyrsta sólarhringinn. Lokað var fyrir vatn og rafmagn til Gasa á öðrum degi átakanna og loftárásum haldið áfram af hendi Ísraels. [3]
Ísrael safnaði 300.000 manna herliði við landamæri Gasa [4] og sagði 1,1 milljón íbúa á norðurhluta svæðisins (Gaza-borg) að flýja suður. [5]
Spítali var sprengdur í suður-Gasa-borg 17. október með þeim afleiðingum að um 500 manns létust. Ísraelsher neitaði sök og rakti sprenginguna til íslamskra vígasamtaka sem áttu að hafa sett af stað misheppnað skot. [6]
Átökin breiddust út á Vesturbakkann og við landamæri Ísraels og Líbanons þar sem eldflaugum var skotið. Mannfall var á báðum svæðum.
Í byrjun desember hafði Ísraelsher eyðilagt yfir 100.000 byggingar á Gasa [7]. Herinn gerði loftárásir á suður-Gasa, Khan Yunis og Rafah og réðst síðar þar inn.
Ísraelsher hafði í apríl drepið nær 200 hjálparstarfsmenn sem dreifðu matvælum til flóttamanna. Árásirnar voru gagnrýndar harðlegar og sagðar sumar gerðar af ásettu ráði.[8]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ How Hamas staged Israel lightning assault no-one thought possible BBC, sótt 9. okt. 2023
- ↑ Flókin og þaulskipulögð árás beint fyrir framan nefið á Ísraelsmönnum Rúv, sótt 9. okt. 2023
- ↑ Loka fyrir rafmagn og vatn til íbúa Gaza Rúv, sótt 9. okt. 2023
- ↑ Innrás virðist yfirvofandi Vísir, sótt 11. okt. 2023
- ↑ 1,1 milljón íbúum á Gaza sagt að yfirgefa heimili sín Rúv, sótt 13. okt. 2023
- ↑ BBC News - Panic and confusion at scene of Gaza hospital blast BBC, sótt 19/10 2023
- ↑ Nearly 100,000 Gaza buildings may be damaged, satellite images show BBC, sótt 4/12 2023
- ↑ World Central Kitchen founder says Israel targeted staff car by car BBC, sótt 4. apríl 2024