Forsíða
Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 56.694 greinar.
Grein mánaðarins
Sun Myung Moon var suður-kóreskur trúarleiðtogi sem var jafnframt þekktur fyrir viðskiptaumsvif sín og stuðning sinn við ýmsa pólitíska málstaði. Moon var stofnandi og andlegur leiðtogi Sameiningarkirkjunnar, kristins söfnuðar sem gekk út á þá trúarkenningu að Moon sjálfur væri nýr Messías sem hefði verið falið að ljúka hjálpræðisverkinu sem Jesú mistókst að vinna fyrir 2000 árum. Fylgismenn Moons eru gjarnan kallaðir „Moonistar“ (e. Moonies).
Með framlögum fylgjenda sinna gerði Moon Sameiningarkirkjuna að viðskiptalegu stórveldi og varð sjálfur vellauðugur. Hann kom sér jafnframt í samband við marga valdsmenn og þjóðarleiðtoga á borð við Richard Nixon, George H. W. Bush, Míkhaíl Gorbatsjov og Kim Il-sung. Söfnuður Moons hefur ætíð verið umdeildur og gagnrýnendur hans líta jafnan á hann sem sértrúarsöfnuð sem heilaþvær og féflettir meðlimi sína. Moon sjálfur var um skeið fangelsaður fyrir skattsvik á níunda áratugnum.
Í fréttum
- 19. maí: Flugfélagið Niceair verður gjaldþrota.
- 16. maí - 17. maí: Leiðtogafundur Evrópuráðsins er haldinn í Hörpu.
- 13. maí: Sænska söngkonan Loreen (sjá mynd) vinnur Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2023 með laginu „Tattoo“ og verður fyrsta konan sem hefur unnið keppnina tvisvar.
- 6. maí: Karl 3. er krýndur konungur Bretlands.
- 5. maí: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsir því yfir að Covid-19 sé ekki lengur ógn við heimsbyggðina.
- 3. maí: Erling Braut Håland sló markametið í ensku úrvalsdeildinni á einu tímabili.
Yfirstandandi: Átökin í Súdan • Borgarastyrjöldin í Jemen • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Kórónaveirufaraldurinn • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 20. maí
- 2002 - Austur-Tímor fékk sjálfstæði eftir 20 ára hersetu Indónesíu.
- 2006 - Finnland sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í fyrsta sinn með laginu „Hard Rock Hallelujah“ í flutningi þungarokkshljómsveitarinnar Lordi.
- 2006 - Þriggja gljúfra stíflan í Kína var fullgerð.
- 2010 - Fimm málverkum, þar á meðal eftir Pablo Picasso, Amedeo Modigliani og Fernand Léger, var stolið frá safninu Musée d'Art Moderne de la Ville de Paris.
- 2014 - 118 manns létust í sprengjuárás í Jos í Nígeríu.
- 2015 - Ríki aðskilnaðarsinna í Úkraínu, Donetsklýðveldið og Luhansklýðveldið, ákváðu að hætta við stofnun sambandsríkisins Novorossija.
- 2019 – Meirihluti landa heims samþykkti endurskilgreiningu SI-kerfisins. Mælieiningin kílógramm var endurskilgreind út frá Plancks-fasta.
- 2021 - Ísrael féllst á vopnahlé eftir þrýsting frá alþjóðasamfélaginu og dauða 250 manna.
- 2022 - Rússneski herinn lagði Mariupol undir sig eftir langt umsátur.
Vissir þú...
- … að talið er að austurríski ferðabókahöfundurinn Ida Pfeiffer hafi tekið eina af fyrstu ljósmyndum sem teknar voru á Íslandi?
- … að Gjörðabækur öldunga Zíons, eitt áhrifamesta rit sögunnar við útbreiðslu Gyðingahaturs, er að miklu leyti eftirlíking af ádeiluriti um Napóleon 3. Frakkakeisara frá 19. öld?
- … að tónlistarstefnan dómsdagsmálmur er meðal annars undir áhrifum frá Bítlalaginu „I Want You (She's So Heavy)“ frá 1969?
- … að stjórnarskrá Venesúela frá árinu 1999 tryggir frumbyggjum Venesúela ákveðinn fjölda sæta á venesúelska þinginu?
- … að stjörnumerkið Fljótið (sjá mynd) er það stjörnumerki sem nær lengst frá norðri til suðurs?
- … að Erwin Helmchen var markahæsti knattspyrnumaður sögunnar samkvæmt RSSSF?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |