Forsíða
Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 55.734 greinar.
Grein mánaðarins
Kauphöllin í New York er stærsta kauphöll í heimi. Á íslensku er oftast vísað til hennar sem Wall Street í daglegu tali. Í febrúar 2015 var verðmæti fyrirtækja í kauphöllinni í New York metið á um 16.600 milljarða Bandaríkjadali eða 2.193.615 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins 12. maí 2015.
Kauphöllin í New York er í eigu keðjunnar Intercontinental Exchange. Það er bandarískt eignarhaldsfyrirtæki sem er sjálft á skrá NYSE.
Dagleg viðskipti nema um 169 milljörðum dala eða um 22.084 milljörðum íslenskra króna miðað við ofangreint gengi. Alls eru um 2.800 fyrirtæki í kauphöllinni. Í júlí 2004 voru 28 af 30 fyrirtækjum Dow Jones-vísitölunnar skráð í New York-kauphöllinni.
Í kauphöllinni er svokallað viðskiptagólf. Þar keppast menn um kaup og sölu með látum, hrópa sem hæst og bjóða þau verðbréf til sölu, sem þeir hafa til umráða. Í kauphöllinni eru 21 herbergi sem nýtast til viðskipta.
Í fréttum
- 8. febrúar: LeBron James tekur framúr Kareem Abdul-Jabbar og verður stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta.
- 6. febrúar: Mörg þúsund látast í Tyrklandi og Sýrlandi eftir jarðskjálfta í suðausturhluta Tyrklands (sjá mynd).
- 3. febrúar: Um 570 starfsmenn Eflingar fara í verkfall til 7. febrúar.
- 28. janúar: Petr Pavel, fyrrum formaður hernaðarnefndar Atlantshafsbandalagsins, er kjörinn forseti Tékklands.
- 23. janúar: Lögreglu er heimilt að bera rafbyssur á Íslandi.
- 19. janúar: Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands segir af sér embætti.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Innrás Rússa í Úkraínu/Stríð Rússlands og Úkraínu • Kórónaveirufaraldurinn • Mótmælin í Íran • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 8. febrúar
- 2002 - Opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna fór fram í Salt Lake City.
- 2005 - Ísrael og Palestína samþykktu vopnahlé.
- 2005 - Kortaþjónustan Google Maps hóf göngu sína.
- 2006 - Fuglaflensutilfelli voru staðfest í Ítalíu, Grikklandi og Búlgaríu.
- 2007 - Palestínsku hreyfingarnar Hamas og Fatah sammæltust um samsteypustjórn.
- 2007 - Bandaríska fyrirsætan Anna Nicole Smith fannst látin vegna ofneyslu lyfja á hótelherbergi í Hollywood.
- 2010 - Geimskutlan Endeavour var send til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
- 2012 - Verne Global, fyrsta „græna“ gagnaverið í heiminum, var tekið í notkun á Ásbrú. Það var jafnframt fyrsta atvinnuskapandi verkefnið sem fór af stað á Suðurnesjum eftir Bankahrunið.
- 2020 – Þingkosningar fóru fram á Írlandi. Lýðveldisflokkurinn Sinn Féin vann í fyrsta sinn flest atkvæði af öllum flokkum.
Vissir þú...
- … að Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu, hefur unnið sem lögfræðingur fyrir bandarísku forsetafrúna Melaniu Trump?
- … að mexíkóska hugtakið malinchismo, sem vísar til manneskju sem heldur meira upp á erlendar vörur og siði en innlendar, er dregið af frumbyggjakonunni La Malinche (sjá mynd), sem var túlkur spænska landvinningamannsins Hernáns Cortés á 16. öld?
- … að Emomali Rahmon, forseti Tadsíkistans, hefur verið við völd frá árinu 1992 og er því þaulsetnasti leiðtogi allra fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna?
- … að höggormur er eina eiturslöngutegundin á Norðurlöndum?
- … að höfuðlýs eru frábrugðnar öðrum blóðætum eins og flóm að því leyti að þær eyða öllu lífi sínu á hýsli?
- … að brasilíska höfuðborgin Brasilía var stofnuð að undirlagi forsetans Juscelino Kubitschek árið 1956 til að hvetja fleiri Brasilíumenn til að flytjast til vesturhluta landsins?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |