Forsíða
Velkomin(n) á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 54.971 greinar.
Grein mánaðarins
Kolbeinn kafteinn er ein af aðalpersónunum í myndasögunum um Ævintýri Tinna eftir belgíska teiknarann Hergé. Í sögunum er Kolbeinn gamall skipstjóri á kaupskipi og besti vinur söguhetjunnar Tinna.
Kolbeinn kafteinn fylgir Tinna í öllum ævintýrum hans frá og með bókinni Krabbinn með gylltu klærnar (1941) þar sem félagarnir hittast í fyrsta sinn. Þegar Tinni hittir Kolbein er hann skipstjóri á skipinu Karaboudjan en er svo djúpt sokkinn í alkóhólisma að hinn svikuli stýrimaður hans, Hörður, ræður í raun öllu og notar skipið fyrir fíkniefnasmygl. Tinni frelsar hann úr haldi og með þeim tekst óbilandi vinskapur. Í seinni bókum kemur í ljós að Kolbeinn er afkomandi aðalsmannsins Kolbeins Kjálkabíts, skipstjóra í þjónustu Loðvíks 14. Frakklandskonungs.
Árið 1996 nefndu 37,5 % aðspurðra Kolbein kaftein sem uppáhaldspersónu sína í bókunum og er hann því vinsælasta persónan í Tinnabókunum.
Í fréttum
- 26. september: Bandalag hægriflokka undir forystu Bræðra Ítalíu vinnur þingkosningar á Ítalíu. Áætlað er að Giorgia Meloni (sjá mynd) verði fyrsti kvenforsætisráðherra landsins.
- 11. september: Bandalag Svíþjóðardemókrata, Hægriflokksins, Frjálslyndra og Kristilegra demókrata vinnur þingmeirihluta í kosningum í Svíþjóð.
- 10. september: Úkraínumenn endurheimta af rússneska hernámsliðinu um 3000 ferkílómetra svæði austur af borginni Kharkív. Í kjölfarið gerðu Rússar árásir á innviði í samnefndu héraði.
- 8. september: Elísabet 2. Bretadrottning deyr eftir rúm sjötíu ár í embætti. Ríkisarfinn Karl tekur við konungdómi í Bretlandi undir nafninu Karl 3.
- 5. september: Liz Truss tekur við sem leiðtogi breska Íhaldsflokksins og verður næsti forsætisráðherra Bretlands.
- 30. ágúst: Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, deyr.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Innrás Rússa í Úkraínu/Stríð Rússlands og Úkraínu • Kórónaveirufaraldurinn • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 26. september
- 2002 - 1.863 fórust þegar ferjunni Joola hvolfdi undan strönd Gambíu.
- 2005 - Lynndie England var dæmd fyrir þátttöku í pyntingum fanga í Abu Ghraib-fangabúðunum.
- 2006 - Á bilinu 10-15 þúsund manns gengu mótmælagöngu niður Laugaveg til þess að mótmæla stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar. Þetta voru talin vera fjölmennustu mótmæli á Íslandi frá 24. maí 1973.
- 2007 - Eftir margra daga mótmæli gegn stjórn Mjanmar brást stjórnarherinn við og reyndi að stöðva mótmælin. Fyrstu dauðsföll af völdum stjórnarhersins voru staðfest. Búddamunkar og aðrir mótmælendur voru handteknir og lokað var algjörlega fyrir Internetaðgang í landinu.
- 2008 - Gengisvísitala íslensku krónunnar fór upp í 183,91 stig og hafði þá aldrei verið hærri. Krónan hafði aldrei verið lægri gagnvart evrunni (1/140,96) og ekki lægri gangvart bandaríkjadal síðan árið 2002 (1/96,80).
- 2009 - Nær 400 fórust þegar fellibylurinn Ketsana gekk yfir Filippseyjar, og síðar Víetnam og Laos.
- 2014 - Þúsundir andstæðinga stjórnar Islam Karimov í Úsbekistan voru handteknir.
- 2021 – Þingkosningar voru haldnar í Þýskalandi. Jafnaðarmannaflokkurinn undir forystu Olafs Scholz vann flest sæti.
- 2021 - Hjónabönd samkynhneigðra voru leyfð í Sviss í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu.
Vissir þú...
- … að orðið kósakki þýðir „frjáls maður“ á tyrkneskum málum?
- … að flestir grunnskólar í Kína gera kröfu um að nemendur gerist aðilar að Brautryðjendaæsku Kína (sjá mynd)?
- … að Bartólómeus 1., patríarki rétttrúnaðarkirkjunnar í Konstantínópel, er stundum kallaður „græni patríarkinn“ vegna áhuga hans á umhverfisvernd??
- … að á tímabilinu 2000 til 2009 voru sex blaðamenn hjá rússneska dagblaðinu Novaja Gazeta myrtir?
- … að búauðgisstefnan er almennt talin fyrsti vísindaskólinn í hagfræði?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |