2022
Jump to navigation
Jump to search
Árþúsund: | 3. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Árið 2022 (MMXXII í rómverskum tölum) er í gregoríska tímatalinu almennt ár sem byrjar á laugardegi.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
Janúar[breyta | breyta frumkóða]
- 2. janúar
- Abdalla Hamdok sagði af sér sem forsætisráðherra Súdans.
- Yfir 40 mótmælendur í Kasakstan létu lífið í kjölfar mótmæla gegn hækkandi eldsneytisverði og ríkisstjórn landsins.
- 15. janúar – Kraftmikið eldgos varð í neðansjávareldstöðinni Hunga Tonga–Hunga Haʻapai í Tonga-eyjaklasanum. Flóðbylgjuviðvaranir voru gefnar út allt til Bandaríkjanna.
- 23. janúar – Roch Marc Christian Kaboré, forseta Búrkína Fasó, var steypt af stóli í valdaráni hersins.
Febrúar[breyta | breyta frumkóða]
- 3. febrúar – Flugslysið á Þingvallavatni 2022: Lítil Cessna-flugvél með fjórum innanborðs fórst á Þingvallavatni.
- 15. febrúar – Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada virkjaði neyðarlög til að binda enda á mótmæli vörubílstjóra og fleiri gegn bólusetningaskyldu og sóttvarnareglum.
- 20. febrúar – Vetrarólympíuleikunum í Beijing lauk.
- 22. febrúar – Stríð Rússlands og Úkraínu: Vladímír Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi sjálfstæði Alþýðulýðveldanna Donetsk og Luhansk í austurhluta Úkraínu og sendi rússneska hermenn yfir úkraínsku landamærin til að sinna „friðargæslu“.
- 24. febrúar – Rússar hófu innrás í Úkraínu.
- 25. febrúar - Öllum takmörkunum vegna COVID-19-faraldursins á Íslandi var aflétt innanlands þrátt fyrir mikinn fjölda daglegra smita.
Mars[breyta | breyta frumkóða]
- 9. mars – Yoon Suk-yeol var kjörinn forseti Suður-Kóreu.
Apríl[breyta | breyta frumkóða]
- 2. apríl - Tveggja mánaða vopnahlé hófst í borgastyrjöldinni í Jemen.
- 3. apríl - Þingkosningar voru haldnar í Ungverjalandi. Viktor Orbán vann fjórða kjörtímabil sitt sem forsætisráðherra.
- 7. apríl - Tilnefning Ketanji Brown Jackson til Hæstaréttar Bandaríkjanna var staðfest af öldungadeild Bandaríkjaþings.
- 9. apríl - Þing Pakistans samþykkti vantraust á forsætisráðherra landsins, Imran Khan.
- 20. apríl - José Ramos-Horta var kjörinn forseti Austur-Tímor.
- 24. apríl - Emmanuel Macron var endurkjörinn forseti Frakklands.
- 25. apríl - Stjórn Twitter samþykkti 44 milljarða dala tilboð Elon Musk í fyrirtækið.
- 28. apríl - Forsætisráðherra Bresku Jómfrúaeyja, Andrew Fahie, var handtekinn í Bandaríkjunum fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti.
Maí[breyta | breyta frumkóða]
- 14. maí
- Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2022 var haldin í Tórínó á Ítalíu.
- Sveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022 voru haldnar.
Júní[breyta | breyta frumkóða]
- 2. júní – 5. júní: Bretar héldu upp á 70 ára krýningarafmæli Elísabetar 2. drottningar.
- 11. júní – Jeanine Áñez, fyrrum forseti Bólivíu, var dæmd í tíu ára fangelsi fyrir aðild sína að meintu valdaráni árið 2019.
- 17. júní – Golden State Warriors unnu sinn 4. NBA-titil á sjö árum. Stephen Curry var valinn mikilvægasti leikmaðurinn í úrslitum.
- 19. júní – Gustavo Petro var kjörinn forseti Kólumbíu.
Fyrirhugaðir atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- EM í knattspyrnu kvenna verður haldið í Englandi í júlí.
- HM í knattspyrnu karla verður haldið í Katar í nóvember.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 6. janúar – Sidney Poitier, bahamísk-bandarískur leikari (f. 1927).
- 9. janúar – Bob Saget, bandarískur leikari (f. 1956).
- 11. janúar - Örn Steinsen, íslenskur knattspyrnumaður og þjálfari (f. 1940)
- 16. janúar – Ibrahim Boubacar Keïta, fyrrum forseti Malí (f. 1945).
- 20. janúar – Meat Loaf, tónlistarmaður og leikari (f. 1947).
- 5. mars – Adda Bára Sigfúsdóttir, íslenskur veðurfræðingur og stjórnmálakona (f. 1926).
- 23. mars – Guðrún Helgadóttir, íslenskur rithöfundur og stjórnmálakona (f. 1935).
- 23. mars – Madeleine Albright, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna (f. 1937).
- 25. mars – Taylor Hawkins, bandarískur tónlistarmaður (f. 1972).
- 5. apríl – Bjarni Tryggvason, kanadískur geimfari (f. 1945).
- 6. apríl – Vladímír Zhírínovskíj, rússneskur stjórnmálamaður (f. 1946).
- 12. apríl – Gilbert Gottfried, bandarískur gamanleikari (f. 1955).
- 22. apríl - Leifur Hauksson, íslenskur útvarpsmaður (f. 1951)