Valencia Club de Fútbol
Fullt nafn
Valencia Club de Fútbol
Gælunafn/nöfn
Los murciélagos (Leðurblökurnar )
Stytt nafn
VCF, VAL
Stofnað
18 Mars 1919 sem Valencia Futbol Club
Leikvöllur
Mestalla
Stærð
48.600 áhorfendur
Stjórnarformaður
Anil Murthy
Knattspyrnustjóri
Javi Gracia
Deild
La Liga
2020-2021
13.sæti
Valencia Club de Fútbol , oftast kallað Valencia CF eða Valencia , er spænskt knattspyrnufélag frá València og spilar í La Liga . Það var stofnað árið 1919. Valencia hefur unnið alls sex La Liga deildartitla , átta sinnum konungsbikarinn Copa del Rey . Það hefur tvisvar sinnum unnið Borgakeppni Evrópu og einu sinni Evrópukeppni félagsliða og einu sinni Evrópukeppni bikarhafa . Einnig hefur liðið komist tvisvar í úrslit Meistaradeildar Evrópu . Árið 2000, þegar það tapaði gegn erkifjendunum í Real Madrid og ári síðar þegar þeir töpuðu í vítspyrnukeppni gegn Bayern München .
Heimavöllurinn Mestalla tekur 48.600 áhorfendur í sæti. Valencia er fjórða mest studda félag Spánar á eftir Real Madrid , Barcelona og Atletico Madrid .
5. október 2020
Ath: Fánar eru tákn fyrir það þjóðerni sem skráð eru hjá FIFA . Leikmenn gætu haft fleiri en eitt ríkisfang.
La Liga
Sigrar (6): 1941-42, 1943-44, 1946-47, 1970-71, 2001-02, 2003-04
Copa del Rey
Sigrar (8): 1940-41, 1948-49, 1953-54, 1966-67, 1978-79, 1998-99, 2007-08, 2018-19
Borgakeppni Evrópu
Sigrar (2): 1961-62, 1962-63
Evrópukeppni félagsliða
Evrópukeppni bikarhafa
Evrópski ofurbikarinn
Valencia hefur tvisvar sinnum tapað í úrslitum Meistaradeildar Evrópu, árið 2000 og 2001 gegn Real Madrid (3-0) og á móti Bayern München (1-1 eftir venjulegan leiktíma., 5-4 í vítaspyrnukeppni).