Forsíða
Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 53.588 greinar.
Grein mánaðarins
Gilgameskviða er söguljóð frá Mesópótamíu og eitt elsta ritaða bókmenntaverk sem þekkt er. Fræðimenn telja að kviðan eigi rætur sínar að rekja til flokks súmerskra þjóðsagna og kvæða um goðsögnina og hetjukonunginn Gilgames, sem síðar voru sett saman í lengra kvæði á akkadísku. Heillegasta eintakið sem til er í dag er varðveitt á tólf leirtöflum úr bókasafni frá 7. öld f.Kr., í eigu assýríska konungsins Assúrbanípal. Mögulegt er að persónan Gilgames sé byggð á raunverulegum höfðingja á tímabili II. frumkeisaraveldisins á 27. öld f.Kr.
Kviðan fjallar um sambandið á milli konungsins Gilgamess, sem orðinn er spilltur af valdi sínu og snauður að hjartagæsku, og vinar hans, Enkídú, sem er hálfgerður villimaður og fer ásamt Gilgamesi í hættulegan leiðangur. Í kvæðinu er sjónum beint talsvert að hugsunum Gilgamess um missi í kjölfar dauða Enkídús. Þráin eftir ódauðleika leikur einnig stórt hlutverk í kviðunni. Hluti hennar segir frá leiðangri Gilgamess, eftir dauða Enkídús, til þess að öðlast ódauðleika.
Í fréttum
- 10. desember: Birkir Blær Óðinsson vinnur sænsku Idol-söngvakeppnina.
- 8. desember: Olaf Scholz tekur við sem kanslari Þýskalands.
- 30. nóvember: Eyríkið Barbados lýsir yfir stofnun lýðveldis. Landstjórinn Sandra Mason (sjá mynd) verður fyrsti forseti landsins og tekur við embætti þjóðhöfðingja af Elísabetu 2. Bretadrottningu.
- 28. nóvember: Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur tekur við völdum á Íslandi.
- 28. nóvember: Xiomara Castro er kjörin forseti Hondúras.
- 24. nóvember: Magdalena Andersson er kjörin nýr forsætisráðherra Svíþjóðar en segir af sér sjö klukkustundum síðar. Hún er endurkjörin 29. nóvember.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Eldgosið á La Palma • Kórónaveirufaraldurinn • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 19. desember
- 2001 - Metloftþrýstingur, 1085,6 hektópasköl, mældist í Mongólíu.
- 2006 - Rússneska flutningaskipið Wilson Muuga strandaði á Hvalsnesi í Sandgerðisbæ. Allir í áhöfn þess björguðust en einn danskur sjóliði fórst við björgunarstörf.
- 2012 - Serbneski stríðsglæpamaðurinn Milic Martinovic var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð á almennum borgurunum í bænum Čuska í Kosóvó 1999.
- 2013 - Loftið í Apollo-leikhúsinu í London hrundi í miðri sýningu á Furðulegt háttalag hunds um nótt með þeim afleiðingum að 700 meiddust.
- 2015 - Tíu hús eyðilögðust og tveir létust þegar snjóflóð reið yfir Longyearbyen á Svalbarða.
- 2016 - Hryðjuverkaárásin í Berlín 2016: Vörubíl var ekið inn á jólamarkað í Berlín með þeim afleiðingum að 12 létust.
- 2016 - Rússneski sendiherrann í Tyrklandi, Andrej Karlov, var skotinn til bana á myndlistarsýningu í Ankara.
Vissir þú...
- … að Ghislaine Maxwell, sem sökuð er um samráð með kynferðisafbrotamanninum Jeffrey Epstein, hefur tvisvar flutt erindi við Hringborð Norðurslóða í Hörpu?
- … að búlgarski fyrrum forsætisráðherrann Bojko Borisov er elsti knattspyrnuleikmaður sem hefur leikið í atvinnumannadeild í Búlgaríu?
- … að borgin Newcastle (sjá mynd) í Nýja Suður-Wales er nefnd eftir Newcastle-upon-Tyne á Englandi þar sem báðar borgirnar byrjuðu sem kolahafnir?
- … að Lúxemborg hefur unnið Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fimm sinnum og að aðeins Írland og Svíþjóð hafa unnið oftar?
- … að hugtakið sakramenti er upprunnið frá Ágústínusi frá Hippó?
- … að austasti oddi Ítalíu er við Otrantósundið?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |