Forsíða
Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 51.202 greinar.
Grein mánaðarins
Rússlandsherför Napóleons var innrás í Rússland sem Napóleon Bónaparte Frakkakeisari hélt í árið 1812. Aðalástæða hennar var sú að Rússland hafði dregið sig úr meginlandskerfi Napóleons; viðskiptabanni gegn Bretlandi sem átti að knésetja þennan helsta keppinaut franska keisaraveldisins.
Í upphafi innrásarinnar stóðu Frakkar betur að vígi en Rússar og bjuggu yfir mun fjölmennari herafla. Frakkar hertóku Moskvu þann 7. september 1812 en eftir það snerist gæfan Rússum í vil. Frakkar neyddust til að hörfa frá gagnáhlaupi Rússa þar sem Rússar eyddu eigin mat og birgðum frekar en að leyfa Frökkum að komast yfir þær og því gat Napóleon ekki haldið uppi her sínum með rússneskum afurðum líkt og hann hafði ætlað sér. Frekar en að takast á við her Napóleons á hans forsendum beittu Rússar skæruhernaði gegn Frakkaher á meðan hann neyddist til að hörfa. Síðan leiddu sjúkdómar, kaldur vetur auk hörku rússneskra hermanna og borgara til þess að Napóleon beið ósigur. Þessi afgerandi ósigur Napóleons markaði þáttaskil í Napóleonsstyrjöldunum og dró svo úr hernaðaryfirburðum Frakka að Napóleon neyddist til að segja af sér árið 1814.
Napóleonsstyrjaldirnar settu mark sitt á rússneska menningu. Lev Tolstoj skrifaði um Rússlandsherförina í skáldsögu sinni, Stríð og friði. Pjotr Iljitsj Tsjaíkovskíj var einnig fyrir innblæstri frá henni þegar hann samdi 1812-forleikinn. Í seinni heimsstyrjöldinni fór innrás Þjóðverja í Sovétríkin á svipaðan hátt.
Í fréttum
- 9. nóvember: Armenía og Aserbaísjan skrifa undir vopnahléssamning vegna átaka í Nagornó-Karabak.
- 3. nóvember: Joe Biden (sjá mynd), frambjóðandi Demókrataflokksins, vinnur forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.
- 19. október: Luis Arce er kjörinn forseti Bólivíu.
- 17. október: Verkamannaflokkurinn undir forystu Jacindu Ardern vinnur stórsigur í þingkosningum á Nýja-Sjálandi.
- 15. október: Sooronbay Jeenbekov, forseti Kirgistans, segir af sér vegna mótmæla og uppþota eftir þingkosningar í landinu.
- 7. október: Emmanuelle Charpentier og Jennifer Doudna vinna til Nóbelsverðlaunanna í efnafræði fyrir uppgötvun sína á CRISPR/Cas9-erfðatækninni.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Kórónaveirufaraldurinn • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 6. desember
- 1990 - Saddam Hussein sleppti nokkrum vestrænum gíslum úr haldi í Írak.
- 1990 - Forseti Bangladess, Hussain Muhammad Ershad, neyddist til að segja af sér í kjölfar mikilla mótmæla.
- 1993 - Debetkort voru tekin í notkun á Íslandi.
- 2002 - Glerárkirkja var vígð á Akureyri.
- 2005 - Írönsk herflutningavél hrapaði á tíu hæða byggingu í Teheran með þeim afleiðingum að 128 létust.
- 2008 - Óeirðir hófust í Grikklandi eftir að gríska lögreglan skaut 15 ára ungling til bana.
- 2017 - Bandaríkin viðurkenndu Jerúsalem sem höfuðborg Ísrael.
Vissir þú...
- … að Thurgood Marshall var fyrsti svarti Bandaríkjamaðurinn sem sat sem dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna?
- … að Alex hugdjarfi (sjá mynd), fyrsta bókin í myndasöguflokknum Ævintýri Alexar, var spunnin jafnóðum af fingrum fram án þess að ákveðið hefði verið um lok sögunnar?
- … að kosningaslagorð Donalds Trump Bandaríkjaforseta, „Make America Great Again“, hafði áður verið notað af ýmsum bandarískum stjórnmálamönnum allt frá árinu 1940, meðal annars af forsetunum Ronald Reagan og Bill Clinton?
- … að rússnesk-sovéski rithöfundurinn Maxim Gorkí var fimm sinnum tilnefndur til bókmenntaverðlauna Nóbels en vann aldrei?
- … að höllin Vaux-le-Vicomte, elsta flaggskip franska gullaldarstílsins, komst í eigu Loðvíks 14. Frakklandskonungs eftir að fyrri eigandi var fangelsaður fyrir þjófnað?
- … að Enola Gay, bandaríska herflugvélin sem varpaði kjarnorkusprengjunum á Hiroshima og Nagasaki, var nefnd eftir móður flugmannsins sem flaug vélinni?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |