Forsíða
Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 49.815 greinar.
Grein mánaðarins
Hnúfubakur (fræðiheiti: Megaptera novaeangliae), einnig kallaður hnúðurbakur og skeljungur, er skíðishvalur af ætt reyðarhvala.
Hnúfubakur er frekar kubbslega vaxinn, sverastur um miðjuna en mjókkar til beggja enda. Fullorðinn er hann 13 til 17 metra langur og 25 til 40 tonn á þyngd. Kýrnar eru heldur stærri en tarfarnir eins og er um alla skíðishvali. Hausinn er um þriðjungur af heildarlengd hvalsins. Skíðin eru svört á lit og öllu styttri en skíði annarra skíðishvala af svipaðri stærð. Hnúfubakurinn hefur 330 pör af skíðum og eru þau um 60 cm á lengd og 30 cm á breidd þar sem þau eru breiðust, sú hlið skíðanna sem snýr inn að munnholi er alsett hárum.
Fyrir daga sprengiskutulsins voru hnúfubakar miklu meira veiddir en aðrar tegundir reyðarhvala. Bæði var að þeir héldu sig oft nálægt ströndum og einnig synda þær hægar en frændur þeirra. Hnúfubakur var án efa meðal þeirra tegunda sem voru skutlaðar við Ísland fyrr á öldum. Með nýrri tækni í lok 19. aldar, gufuknúnum skipum og sprengiskutlum, gekk hratt á hnúfubaksstofna heimsins. Talið er að 2800 húfubakar hafi verið veiddir við Vestfirði og Austfirði á árunum 1889 til 1915 en fyrir þann tíma var hvalurinn mjög algengur við strendur landsins.
Í fréttum
- 18. – 19. apríl: Sextán manns láta lífið í skotárásum í Nova Scotia í Kanada.
- 27. mars: Norður-Makedónía (sjá mynd) gerist 30. aðildarríki Atlantshafsbandalagsins.
- 11. mars: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsir yfir heimsfaraldri vegna COVID-19.
- 29. febrúar: Bandaríkjamenn undirrita samning við Talíbana í von um að binda enda á stríðið í Afganistan.
- 19. febrúar: Ellefu manns láta lífið í skotárás í Hanau í Þýskalandi.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Kórónaveirufaraldur 2019-2020 • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 22. maí
- 1987 - Fyrsta heimsbikarmótið í ruðningi fór fram á Nýja-Sjálandi.
- 1990 - Norður-Jemen og Suður-Jemen á Arabíuskaganum sameinuðust í Jemen.
- 1990 - Microsoft gaf út stýrikerfið Windows 3.0.
- 1992 - Bosnía-Hersegóvína, Króatía og Slóvenía urðu aðilar að Sameinuðu þjóðunum.
- 1993 - Fyrsta tölublað samíska dagblaðsins Min Áigi kom út í Karasjok í Noregi.
- 1994 - Jóhannes Páll 2. páfi gaf út páfabulluna Ordinatio Sacerdotalis þar sem kom fram að einungis karlar gætu orðið prestar í kaþólsku kirkjunni.
- 1998 - Bandaríska kvikmyndin Fear and Loathing in Las Vegas var frumsýnd.
- 2001 - Plútóstirnið 28978 Ixion var uppgötvað.
- 2002 - Franska kvikmyndin Irréversible var frumsýnd.
- 2004 - Filippus, prins af Astúrías, gekk að eiga Letiziu Ortiz.
- 2008 - Eurobandið tók þátt í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2008.
- 2010 - Keflavíkurflugvelli var lokað vegna gossins í Eyjafjallajökli.
Vissir þú...
- … að árið 2006 var íslenskur maður kærður fyrir morðhótun eftir að hann reisti níðstöng gegn óvini sínum?
- … að 165 af löndum heimsins nota hægri umferð á meðan 75 lönd nota vinstri umferð?
- … að Síberíuhlynur er kuldaþolnasta tegundin af hlyni?
- … að leiðtogi Jesúítareglunnar er oft kallaður svarti páfinn vegna þess að hann er ávallt svartklæddur, andstætt páfanum sjálfum sem er hvítklæddur?
- … að um 120.000 íbúar New Orleans flúðu borgina árið 2005 vegna Fellibylsins Katrínu (sjá mynd)?
- … að árið 2018 höfðu aðildarríki BRICS samanlagða landsframleiðslu upp á 18,6 billjón bandaríkjadala að nafnvirði, eða um 23,2% af vergri heimsframleiðslu?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |