Forsíða
Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 49.612 greinar.
Grein mánaðarins
Hnúfubakur (fræðiheiti: Megaptera novaeangliae), einnig kallaður hnúðurbakur og skeljungur, er skíðishvalur af ætt reyðarhvala.
Hnúfubakur er frekar kubbslega vaxinn, sverastur um miðjuna en mjókkar til beggja enda. Fullorðinn er hann 13 til 17 metra langur og 25 til 40 tonn á þyngd. Kýrnar eru heldur stærri en tarfarnir eins og er um alla skíðishvali. Hausinn er um þriðjungur af heildarlengd hvalsins. Skíðin eru svört á lit og öllu styttri en skíði annarra skíðishvala af svipaðri stærð. Hnúfubakurinn hefur 330 pör af skíðum og eru þau um 60 cm á lengd og 30 cm á breidd þar sem þau eru breiðust, sú hlið skíðanna sem snýr inn að munnholi er alsett hárum.
Fyrir daga sprengiskutulsins voru hnúfubakar miklu meira veiddir en aðrar tegundir reyðarhvala. Bæði var að þeir héldu sig oft nálægt ströndum og einnig synda þær hægar en frændur þeirra. Hnúfubakur var án efa meðal þeirra tegunda sem voru skutlaðar við Ísland fyrr á öldum. Með nýrri tækni í lok 19. aldar, gufuknúnum skipum og sprengiskutlum, gekk hratt á hnúfubaksstofna heimsins. Talið er að 2800 húfubakar hafi verið veiddir við Vestfirði og Austfirði á árunum 1889 til 1915 en fyrir þann tíma var hvalurinn mjög algengur við strendur landsins.
Í fréttum
- 18. – 19. apríl: Sextán manns láta lífið í skotárásum í Nova Scotia í Kanada.
- 27. mars: Norður-Makedónía (sjá mynd) gerist 30. aðildarríki Atlantshafsbandalagsins.
- 11. mars: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsir yfir heimsfaraldri vegna COVID-19.
- 29. febrúar: Bandaríkjamenn undirrita samning við Talíbana í von um að binda enda á stríðið í Afganistan.
- 19. febrúar: Ellefu manns láta lífið í skotárás í Hanau í Þýskalandi.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Kórónaveirufaraldur 2019-2020 • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 1. maí
- 2006 - Bólivía undir stjórn Evo Morales þjóðnýtti allar gas- og olíulindir landsins.
- 2009 - Svínaflensa greindist í fyrsta sinn í Danmörku.
- 2009 - Lög um hjónabönd samkynhneigðra gengu í gildi í Svíþjóð.
- 2011 - Jóhannes Páll 2. páfi var lýstur sæll af kaþólsku kirkjunni.
- 2015 - Heimssýningin Expo 2015 hófst í Mílanó.
- 2016 - Skógareldar í Fort McMurray í Kanada eyðilögðu 505 hektara lands og 2400 byggingar.
- 2017 - Sósíalistaflokkur Íslands var stofnaður.
Vissir þú...
- … að breski stjórnmálamaðurinn Philip Noel-Baker er eini maðurinn sem hefur unnið bæði til Ólympíuverðlauna og Nóbelsverðlauna?
- … að allt að 41% transfólks reynir sjálfsvíg einhvern tímann á lífsleiðinni vegna transfóbíu?
- … að smitandi lifrardrepi í kanínum var viljandi dreift í Ástralíu árið 1991 til að halda niðri eða eyða stofni kanína sem er plága þarlendis?
- … að í um áratug áður en íslenski Blóðbankinn var stofnaður höfðu skátar gefið blóð eftir þörfum á spítölum?
- … að blaðgræna (sjá mynd) er græn á litinn því hún gleypir lítið af grænu ljósi og því endurkastast það af blaðgrænunni?
- … að tilgátur eru um að Egill Skallagrímsson hafi verið undir áhrifum af írskum kveðskap í gegnum fóstru sína, Þorgerði brák?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |