Leiðbeiningar um vörumerki

Velkomin(n) á vefsvæðið um vörumerki YouTube. Notaðu þessa síðu til að kynna þér leiðbeiningar um notkun á nafni og merki YouTube. Lestu leiðbeiningarnar sem gilda um þá notkun sem við á í þínu tilfelli og gakktu úr skugga um að þú sért að nota nýju merkin á niðurhalssvæði vefsvæðisins þegar þú notar merki YouTube. Til að hefjast handa skaltu velja hér að neðan hvaða notkunardæmi á við um þig.

Ef ekkert þessara tilvika á við um þig eða ef vefsvæðið svarar ekki spurningum þínum þarftu að senda beiðni þína um notkun YouTube vörumerkisins á ensku í gegnum eyðublað fyrir beiðni um vörumerkjanotkun til yfirferðar. Allt að vika getur liðið áður en svar berst. Beiðnir sem ekki eru á ensku þurfa að fara í gegnum hliðstæðan aðila í YouTube samstarfi.

Efni þessara síðna er sett inn sem fræðsla og telst ekki lagaleg ráðgjöf. YouTube áskilur sér rétt til að mótmæla allri óviðeigandi notkun vörumerkja sinna og til að framfylgja rétti sínum hvenær sem er.