Höfundaréttur er mikilvægt atriði fyrir YouTube samfélagið í heild. Í köflunum hér að neðan færðu aðgang að öllum nauðsynlegum upplýsingum og verkfærum til að hafa umsjón með réttindum þínum á YouTube og frekari upplýsingar um hvernig þú virðir réttindi annarra höfunda.
Ef þú vilt senda inn tilkynningu um meint brot á höfundarrétti, fá upplýsingar um hvað þú átt að gera ef þú telur að vídeóið þitt hafi verið fjarlægt fyrir mistök eða fá upplýsingar um hvernig Content ID samsvörun er andmælt geturðu kynnt þér neðangreind ferli sem við bjóðum upp á til að hafa umsjón með réttindamálum á einfaldan hátt.
Biðja um að óheimiluð notkun á sköpunarverki þínu sé fjarlægð.
Fara fram á að vídeó sem var fjarlægt af YouTube fyrir mistök vegna brots á höfundarrétti sé sett inn aftur.
Hætta við eða afturkalla beiðni um fjarlægingu efnis sem þú eða fyrirtæki þitt sendi inn til YouTube.
Véfengja Content ID samsvörun við vídeó sem þú telur ranga.
Það er margt sem nauðsynlegt er að vita um höfundarrétt. Ef þú vilt fá hjálp við að greina höfundarréttarmál er best að þú byrjir á úrræðunum hér fyrir neðan. Ef þú færð ekki svar við spurningunni þinni hér geturðu fengið frekari upplýsingar í hjálparmiðstöðinni okkar.
Gerðu greinarmun á Content ID kröfu og fjarlægingu vegna höfundarréttar.
Ef þú hefur fengið punkt vegna höfundarréttarbrots skaltu kynna þér ástæður þess og hvernig best er að leysa málið.
Frekari upplýsingar um Content ID, verkfærið sem eigendur efnis nýta sér til að bera kennsl á efni og gera kröfu til þess í vídeóum sem hlaðið er upp á YouTube.
Tilteknir eiginleikar YouTube krefjast höfundarréttar í góðu ástandi.
Athugaðu hvort reikningurinn er í góðu eða slæmu ástandi hvað varðar höfundarrétt.
Viltu fræðast frekar um höfundarrétt? Þessar heimildir koma þér á sporið, hvort sem þú sækist eftir almennum fróðleik eða ítarlegri skilningi á atriðum eins og sanngjarnri notkun.
Hvað er verndað af höfundarrétti? Hvernig er höfundarréttur frábrugðinn öðrum tegundum hugverka?
Undir tilteknum kringumstæðum er heimilt samkvæmt lögum að nota brot úr höfundarréttarvörðu efni.
Fá upplýsingar um sérstaka tegund leyfis sem gerir notendum kleift að endurnýta efni með þeim skilyrðum að reglunum sé fylgt eftir.
Svör við algengustu spurningunum um höfundarrétt.