Talnagögn

Áhorf

  • Einstakir notendur sem heimsækja YouTube telja yfir milljarð á mánuði
  • Áhorfendur eyða meira en sex milljörðum klukkustunda í að horfa á vídeó í hverjum mánuði á YouTube. Það er næstum því klukkutími á hvern einstakling á jörðinni.
  • Á hverri mínútu er 100 klukkustundum af vídeóefni hlaðið upp á YouTube
  • 80% af allri umferð á YouTube kemur frá löndum utan Bandaríkjanna
  • YouTube er þýtt í 61 landi og yfir á 61 tungumál
  • Samkvæmt Nielsen nær YouTube til fleiri Bandaríkjamanna í aldurshópnum 18–34 ára en nokkur sjónvarpsstöð
  • Milljónir áskrifenda bætast við á hverjum degi. Fjöldi þeirra sem gerast áskrifendur daglega hefur þrefaldast síðan í fyrra og fjöldi nýrra áskrifenda á hverjum degi er fjórum sinnum meiri en í fyrra

Þjónusta YouTube fyrir samstarfsaðila

  • Við byrjuðum árið 2007 og erum nú komin með yfir milljón höfunda frá fleiri en 30 löndum um allan heim sem afla tekna af YouTube vídeóunum sínum
  • Þúsundir rása hafa tugi milljóna króna í árstekjur

Tekjuöflun

  • Þúsundir auglýsenda nota TrueView In-stream og nú er hægt að hlaupa yfir 75% allra auglýsinga í straumspilun
  • Yfir milljón auglýsenda notar Google sem vettvang auglýsinga og stærstur hluti þeirra er lítil fyrirtæki

Farsímar og snjalltæki

  • Nánast 40% af áhorfstíma YouTube á heimsvísu er í gegnum fartæki
  • YouTube er í boði fyrir hundruð milljóna tækja

Content ID

  • Content ID leitar í meira en 400 árum af vídeóum á hverjum degi
  • Yfir 5.000 samstarfsaðilar nota Content ID, þar á meðal allar stærstu sjónvarpsfréttastofurnar, kvikmyndaver og hljómplötufyrirtæki í Bandaríkjunum
  • Við eigum rúmlega 25 milljónir tilvísunarskráa í gagnagrunni Content ID, sem er einn stærsti gagnagrunnur sinnar tegundar í heiminum
  • Content ID hefur aflað samstarfsaðilum hundruðum milljóna Bandaríkjadala