Höfundaréttur er mikilvægt atriði fyrir YouTube samfélagið í heild. Í köflunum hér að neðan færðu aðgang að öllum upplýsingum og verkfærum sem þarf til að hafa umsjón með réttindum þínum á YouTube og frekari upplýsingar um hvernig þú virðir réttindi annarra höfunda.
Ef þú vilt senda inn tilkynningu um meint brot á höfundarrétti, fá upplýsingar um hvað skal gera ef þú telur að vídeóið þitt hafi verið fjarlægt fyrir mistök eða fá upplýsingar um hvernig samsvörun efnisgreiningar er andmælt geturðu hér fyrir neðan kynnt þér þau ferli sem við bjóðum upp á til að hafa umsjón með réttindamálum á einfaldan hátt.
Biðja um að óheimil notkun á sköpunarverki þínu sé fjarlægð.
Biðja um að vídeó sem fjarlægt var fyrir mistök af YouTube vegna höfundarréttarbrots verði gert virkt á ný.
Hætta við eða afturkalla beiðni um fjarlægingu efnis sem þú eða fyrirtæki þitt sendi inn til YouTube.
Rengja samsvörun efnisgreiningar við vídeóið þitt sem þú telur ranga.
Heimur höfundarréttar er margslunginn. Ef þú vilt fá aðstoð við að leysa úr höfundarréttarmáli eru heimildirnar hér að neðan góður byrjunarreitur. Ef spurningunni þinni er ekki svarað hér skaltu leita í hjálparmiðstöðinni okkar, þar sem finna má frekari upplýsingar.
Greindu á milli tilkalls vegna efnisgreiningar og fjarlægingar vegna höfundarréttar.
Ef þú hefur fengið punkt vegna höfundarréttarbrots skaltu kynna þér hvers vegna og hvernig best er að leysa málið.
Frekari upplýsingar um efnisgreiningu, verkfæri sem eigendur efnis nýta sér til að bera kennsl á og gera tilkall til efnis síns í vídeóum sem hlaðið er upp á YouTube.
Tilteknir eiginleikar YouTube krefjast höfundarréttarstöðu í fínu formi.
Athugaðu hvort reikningurinn er í fínu formi eða slæmu hvað varðar höfundarrétt.
Viltu fræðast frekar um höfundarrétt? Þessar heimildir koma þér á sporið, hvort sem þú sækist eftir almennum fróðleik eða ítarlegri skilningi á atriðum á borð við sanngjarna notkun.
Hvað er verndað af höfundarrétti? Hvernig er höfundarréttur frábrugðinn öðrum tegundum hugverka?
Undir tilteknum kringumstæðum er heimilt samkvæmt lögum að nota brot úr höfundarréttarvörðu efni.
Fáðu frekari upplýsingar um sérstaka tegund af leyfi sem leyfir endurnýtingu efnis – ef reglunum er fylgt.
Svör við þeim spurningum um höfundarrétt sem við fáum hvað oftast.