BHM - Bandalag háskólamanna

Aðeins fullgildir félagsmenn í SÍM geta gerst aðilar að BHM

Á undanförnum árum hefur mikið verið rætt um þörf myndlistarmanna fyrir samfélagslegt öryggisnet, og hvernig SÍM gæti komið þar til móts við sína félaga. Aðild að BHM gerir félagsmönnum SÍM kleift að afla sér réttinda í sjúkrasjóði, orlofs – og starfsmenntunarsjóðum BHM. 

 

Málið varðar fyrst og fremst sjálfstætt starfandi listamenn, auk kennara við Listaháskóla Íslands og kennara við einkarekna myndlistarskóla, sem yfirleitt eru ekki í neinu félagi, og ættu þeir því að geta nýtt sér þennan kost.

 

Þar sem sjálfstætt starfandi listamenn eru fæstir á föstum mánaðarlaunum skal miða greiðslur til BHM við reiknað endurgjald mánaðarlega eða viðmiðunarfjárhæð kr. 300.000.- á mánuði. 

 

Lágmarksgreiðsla í sjúkrasjóð er kr. 3.000.- á mánuði, til að halda fullum réttindum, eða 1% af mánaðarlaunum.  Miðað við viðmiðunarfjárhæð kr. 300.000.- í mánaðarlaun þarf að greiða til BHM kr. 5.010.- á mánuði.

 

Með aðild að BHM tekur félagsmaður upplýsta ákvörðun um að gerast aðili að sjúkra-, orlofs- og starfsmenntasjóðum BHM og skuldbindur sig þá til að greiða mánaðarlega iðgjöld til BHM.

 

Sjá vefslóð inn á rafræna skilagrein hér til hægri á síðunni.

 

Á vefsvæði BHM má finna launagreiðendavef ( http://www.bhm.is/kaup-og-kjor/fyrir-launagreidendur/ ) sem hefur að geyma gagnlegar upplýsingar varðandi skil á iðgjöldum. Sjálfstætt starfandi félagsmaður eru því í þessu samhengi bæði launagreiðandi og launþegi.

 

Félagsmönnum ber að senda skilagreinar mánaðarlega til BHM, fyrir 10. hvers mánaðar. Mikilvægt er að rétt stéttarfélagsnúmer (608 ) og heiti stéttarfélags (SÍM) komi fram á skilagreinum.

 

Mikilvægt er að hafa það í huga að skila þarf skilagreinum og greiða iðgjöld í hverjum mánuði til að koma í veg fyrir réttindamissi vegna rofs á greiðslum.  

Hvað ber að greiða til BHM: 

 

Ef miðað er vil laun að fjárhæð kr. 300.000.- :

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lágmarksiðgjöld sem þarf að greiða til BHM  eru þá kr. 6.210.- á mánuði

 

Upplýsingar um félagsgjöld og greiðslur í sjóði BHM

 

Félagsgjöld sem dregin eru mánaðarlega af launum félagsmanna og vinnuveitandi gerir skil á eftirfarandi:

 

Félagsgjöld í SÍM,  kt. 551283-0709 ( 608 ) eru 0,6 % af heildarlaunum

 

Greiðslur sjálfstætt starfandi / vinnuveitanda í sjóði

  1. Í orlofssjóð BHM 0,25% af heildarlaunum.

  2. Í starfsmenntunarsjóð BHM 0,22% af heildarlaunum.

  3. Í styrktarsjóð 0,75% af heildarlaunum (opinberir starfsmenn).

  4. Í sjúkrasjóð BHM 1% af heildarlaun (almennur markaður).

  5. Í vísindasjóð hvers félags 1,5% af föstum dagvinnulaunum *

  6. Til Starfsþróunarseturs háskólamanna 0,7% af heildarlaunum. ( opinberir starfsmenn og ýmsar sjálfseignarstofnanir)

  7. Sveitarfélög greiða 0,1 % af heildarlaunum í Þróunarsjóð vinnumarkaða skv. bókun í kjarasamningi.

  8. Sjúkrasjóður er einungis fyrir starfsmenn á almennum vinnumarkaði. Aðrir greiða í styrktarsjóð. Aldrei greitt í báða í einu.

 

*  Ekki lengur greitt fyrir félagsmenn sem starfa hjá ríki.  Greitt er í vísindasjóð fyrir félagsmenn sem taka laun eftir kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar. Aðild að sjóðnum er valkvæð fyrir félagsmenn á almennum markaði.

 

Iðgjaldaskil

 

Launagreiðendum ber að senda skilagreinar fyrir hvern mánuð með sundurliðun á öllum iðgjöldum til sjóða og stéttarfélaga fyrir hvern launþega til BHM, fyrir 10. hvers mánaðar. Nauðsynlegt er að rétt númer og heiti stéttarfélags komi fram á hverri skilagrein.

 

Krafa myndast í netbanka sjálfstætt starfandi / launagreiðanda þegar skilagrein hefur borist og hún hefur verið bókuð. Eigi greiðsla sér ekki stað fyrir eindaga eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.

 

Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar eftir útborgunarmánuð en eindagi síðasti virki dagur gjalddaga mánaðar.

 

Bankareikningur BHM v/iðgjalda 0336-26-50000 kt. 630387-2569.

 

Rafrænt skilagreinaform BHM.

 

https://www.bhm.is/kaup-og-kjor/fyrir-launagreidendur/skilagrein-greidslur-til-sjoda/innsending

  • Sjálfstætt starfandi og smærri fyrirtæki á almenna vinnumarkaðnum sem ekki skila iðgjöldum inn beint úr launakerfi, geta skilað iðgjöldunum inn í gegnum ofangreint rafrænt skilagreinaform. Formið er einfalt í notkun og birtist útreikningur sjálfkrafa. Notendur þurfa að ákveða í hvaða sjóði þeir ætla ekki greiða, með því að haka við þá sjóði sem þeir vilja sleppa. Athugið að færa þarf inn upphæð í báða launadálka ef félagsgjöldin eru reiknuð af dagvinnulaunum, þó svo að um sömu launaupphæð er að ræða. Einnig er nauðsynlegt að fara vel yfir upplýsingarnar áður en ýtt er á “senda”

  • Netfang fyrir skilagreinar: skilagreinar@bhm.is.

  • Póstfang fyrir skilagreinar sem berast í bréfpósti:

  • Bandalag háskólamanna v/BIB, Borgartúni 6, 105 Reykjavík

Bildschirmfoto 2021-01-16 um 23.45.47.pn