Wikipedia:Merkisáfangar
Jump to navigation
Jump to search
Hér eru skrásettir nokkrir af þeim stóru og smáu sigrum sem íslenska Wikipedia og systurverkefnin íslensku hafa unnið frá upphafi, endilega bætið við listann.
- 06.12.2002: skandinavískur hópur Wikipedianörda sem kallar sig WIKIng setti inn kynningu á sjálfum sér, fyrsta hreyfingin.
- 23.11.2003: breyting númer tvö, grein um Finnland búin til á einhverju hrognamáli frá meginlandinu.
- 05.12.2003: fyrrnefnd grein um Finnland þýdd á íslensku, fyrsti votturinn um það tungumál, saga íslensku Wikipedia hefst í raun hér.
- 26.12.2003: glæsileg forsíða býður nýja höfunda velkomna, allt ætlar undan að láta vegna gífurlegrar ásóknar.
- 18.03.2004: hvorki meira né minna en 100 greinar!
- 29.03.2004: 200 greinar! hvar endar þetta?
- 11.06.2004: þrír notendur (Bjarki, Sindri og Smári) ná að sannfæra æðri yfirvöld um það að veita sér stjórnendatign, hefst þá skipulögð ógnarstjórn sem ekki sér fyrir endann á.
- 14.07.2004: Potturinn opnar (undir einhverju öðru nafni reyndar), samskipti millum notenda ná nýjum hæðum, ekki er aftur snúið.
- 18.07.2004: Ævar gerist möppudýr, íslenska Wikipedia er nú sjálfri sér næg um alla hluti.
- 27.08.2004: Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands er fyrsta greinin sem samþykkt er sem úrvalsgrein, til hamingju.
- 27.08.2004: eitt þúsund greinar! #1000 var greinin 30. september.
- 07.09.2004: í andstöðu við allt sem er gott og réttlátt í þessum heimi framdi nafnlaus notandi hryðjuverk og skemmdi mikinn fjölda greina, því var kippt í liðinn hratt og örugglega.
- 18.09.2004: forsíða íslensku Wikibóka sett upp — saga íslenska Wikibókaverkefnisins hefst hér.
- 08.11.2004: Bjarki sækir um stjórnandaréttindi á íslenska Wikiquote og fær þau, ógnarstjórnin nemur lönd!
- 16.01.2005: forsíða íslenska Wikiquote formlega búin til; einhvers staðar verður allt að byrja.
- 16.01.2005: Snorri Sturluson er 1. greinin á íslenska Wikiquote!
- 20.02.2005: forsíðan sett í löngu tímabæra megrun, ný og fullkomin ásjóna Wikipedia laðar að.
- 21.02.2005: 2.000 greinar! Skordýrafræði var kornið sem fyllti mælinn, heimsyfirráð blasa við.
- 06.08.2005: tengt er í lista yfir íslenskar hljómsveitir af b2.is, mikil þvæla fylgir í kjölfarið en einnig ein og ein ágætis breyting.
- 06.08.2005: sniðmengi er grein nr. 3.000!
- 08.11.2005: rándýr er grein nr. 4.000!
- 12.11.2005: Kjalar er grein nr. 5.000!
- 13.11.2005: Bogey er grein nr. 6.000!
- 13.11.2005: Pollý er grein nr. 7.000!
- 29.12.2005: íslensk útgáfa Wikiheimildar hefur göngu sína.
- 24.02.2006: Hákarl er grein nr. 9.000!
- 18.04.2006: Iceman er umbreytist í möppudýr á Wikibókum. Verkefnið er nú sjálfu sér nægt.
- 06.05.2006: Móðurborð er grein nr. 10.000!
- 10.07.2006: skráðir notendur eru samtals 1000.
- 20.07.2006: útnefning gæðagreina hófst. Saharaverslunin og Sálfræði urðu fyrstar til að hljóta samþykki.
- 10.08.2006: Júpíter (guð) er grein nr. 11.000!
- 05.11.2006: Hippías meiri (Platon) er grein nr. 12.000!
- 22.01.2007: Catullus er grein nr. 13.000!
- 20.03.2007: Íó (gyðjan) er grein nr. 14.000!
- 04.05.2007: Alexander frá Afrodísías er grein nr. 15.000!
- 22.06.2007: Sálin hans Jóns míns er grein nr. 16.000!
- 25.06.2007: íslenska Wikiquote er sett upp spjallsvæði undir merkjum líðandi stundar (seinna breytt í Pottinn). Í kjölfarið ná samskipti notenda nýjum hæðum.
- 11.07.2007: íslenska Wikiheimild nær 1.000 greinum með 201. kafla Ólafs sögu helga.
- 12.07.2007: Fréttablaðið birtir grein um íslensku Wikipediu undir fyrirsögninni: „Riddarar mannlegrar þekkingar“.
- 27.07.2007: List er 100. greinin á íslenska Wikiquote.
- 06.08.2007: Vínarhringurinn er grein nr. 17.000!
- 11.08.2007: Möppudýrið og stjórnandinn sameinast í eina stöðu með því að allir stjórnendur eru gerðir að möppudýrum. Allsherjar ringulreið ríkir!
- 27.10.2007: Samsvörunarkenning um sannleikann er grein nr. 18.000!
- 28.12.2007: Frumutala er grein nr. 19.000!
- 15.02.2008: Franska Vestur-Afríka er grein nr. 20.000!
- 06.04.2008: Undirdjákni er grein nr. 21.000!
- 07.07.2008: Húnafjörður er grein nr. 22.000!
- 17.10.2008: Jean Racine er grein nr. 23.000!
- 09.02.2009: Helgi Þorgils Friðjónsson er grein nr. 24.000!
- 24.05.2009: Charles Barkley er grein nr. 25.000!
- 13.09.2009: Jean-Marie Le Pen er grein nr. 26.000!
- 31.12.2009: Dixie Chicks er grein nr. 27.000!
- 18.03.2010: Agnes af Brandenborg er grein nr. 28.000!
- 31.07.2010: Eiríkur snara er grein nr. 29.000!
- 22.11.2010: Margrét Pála Ólafsdóttir er grein nr. 30.000! (Frétt á mbl.is)
- 15.01.2011: Wikipedia fagnaði 10 ára afmæli og haldið var málþing því til heiðurs (sjá mynd). Á blaðsíðu 32 í Fréttablaðinu var viðtal við Salvöru, Smára og Magnús.
- 04.04.2011: Færeyska lögþingið er grein nr. 31.000!
- 12.08.2011: Steinmóður Bárðarson er grein nr. 32.000!
- 06.01.2012: Sútarabúðir er grein nr. 33.000!
- 29.02.2012: Stálfjall er grein nr. 33.333!
- 22.05.2012: Jane Goodall er grein nr. 34.000!
- 19.11.2012: Hasselt er grein nr. 35.000!
- 04.07.2013: Ríkisábyrgðasjóður er grein nr. 36.000!
- 13.02.2014: Konungsríkið Ísland er grein nr. 37.000!
- 12.11.2014: Félag Wikimedianotenda á Íslandi var stofnað.
- 16.11.2015: Stóri skjálfti er grein nr. 40.000! (Frétt á mbl.is)
- 25.08.2016: Galway er grein nr. 41.000!
- 08.03.2017: Prump er grein nr. 42.000!
- 15. 9. 2017: Yu Kobayashi er grein nr. 43.000!
- 11. 3. 2018: Arthur Balfour er grein nr. 44.444!
- 20. 5. 2018: Viggar er grein nr. 45.000!
- 06. 11. 2018: Bruce Dickinson er grein nr. 46.000!
- 16.06.2020: Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks ER GREIN NR. 50.000.
Wikipedia samfélagið | |
---|---|
Potturinn | Samfélagsgátt | Gátlistinn | Handbókin | |
Reglur: Hlutleysisreglan | Sannreynanleikareglan | Engar frumrannsóknir |
Æviágrip lifandi fólks | Máttarstólpar Wikipedia | Markvert efni | |
Önnur stefnumál: Nafnavenjur | Flokkakerfið | Viðhald | Deilumál | Framkoma á Wikipediu | |
Notendur: Möppudýr | Vélmenni | Hver erum við? | Notendur eftir breytingafjölda | Notendakassar | |
Annað: Samvinna mánaðarins | Tillögur að úrvalsgreinum | Tillögur að gæðagreinum | Merkisáfangar | Hugtakaskrá |