Verðmætasköpun,
matvælaöryggi
og lýðheilsa
Verkefnin okkar
Matís styður við verðmætasköpun, lýðheilsu og matvælaöryggi í öflugri samvinnu við stóran hóp samstarfsaðila, bæði úr opinbera- og einkageiranum, innlenda og erlenda. Í gegnum rannsóknaverkefni, sem eru viðamesti hluti starfseminnar, vinnum við að stórum og fjölbreyttum áskorunum með samstarfsaðilum okkar.
Fréttir og viðburðir
Vilt þú fá fréttir Matís í tölvupósti?
Verðmætasköpun í íslenskum sjávarútvegi
Miklar framfarir hafa átt sér stað í bættri meðferð sjávarafla á síðastliðnum 20-30 árum. Fyrirtæki í sjávarútvegi, hátæknifyrirtæki, stjórnvöld, háskólarnir, Matís og fleiri, hafa lagt mikið kapp á að auka þekkingu allra þeirra sem að greininni koma varðandi meðferð þessa viðkvæma hráefnis. Blóðgun, slæging, þvottur, hreinlæti og kæling eru allt mikilvægir þættir sem hafa með gæði hráefnisins að gera. Einhvern tímann var sagt að maður geri ekki góða vörur úr lélegu hráefni; þá á réttilega við um fiskinn okkar.