Traust er lykilatriði í öllum rekstri Meniga og þess vegna leggur Meniga ofuráherslu á að tryggja, með margvíslegum hætti, trúnað, áreiðanleika og örugga og ábyrga meðferð upplýsinga.
Ennfremur kappkostar Meniga að fræða notendur um öryggismál og hvernig unnið er með upplýsingar þeirra svo enginn þurfi að efast um að Meniga gangi lengra en flestir til að gæta öryggis og tryggja að unnið sé með upplýsingar fólks á öruggan, eðlilegan, löglegan, ábyrgan og siðlegan hátt.
Öryggis- og persónuverndarstefna og öryggismál Meniga eru í sífelldri endurskoðun til að tryggja að ströngustu kröfum sé ávallt fylgt og mun Meniga, eftir atvikum, leitast við að láta óháða vottunaraðila reglulega til að taka út öryggismálin.
Ekki hika við að hafa samband á oryggismal@meniga.is ef það vakna einhverjar spurningar um öryggismál eða meðferð upplýsinga.
Meniga fagnar nýrri löggjöf um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (GDPR) sem kemur til framkvæmdar 25. maí 2018 á evrópska efnahagssvæðinu. Öryggi og persónuvernd hefur ávallt verið grunnstoð í okkar starfsemi og því bæði mikilvægt og jákvætt að löggjafarvaldið hafi tekið þetta skref til að skerpa á lögum og reglum sem snúa að meðferð fyrirtækja á persónuupplýsingum. Frekari upplýsingar um þetta má lesa í neðsta hluta þessarar samantektar Samræming við regluverk og samvinna við eftirlitsaðila.
Eftirfarandi þættir lýsa hvernig Meniga tryggir þín réttindi í kjölfar GDPR.
Meniga greinir bankafærslur af þeim bankareikningum og greiðslukortum sem þú velur að deila með Meniga. Færslur af þessum reikningum eru sóttar og geymdar að jafnaði einu sinni á sólarhring eða þegar þú óskar eftir þvi að þær séu sóttar. Auk þess er staða reikninga og korta geymd.
Þú ert beðin/nn að velja sér netfang þegar þú skráir sig í þjónustuna auk þess sem þjónustan kann að biðja um upplýsingar sem snúa að aldri, kyni, búsetu, stærð húsnæðis eða fjölda bifreiða. Þér er frjálst að velja hvort þú kýst að gefa upp þær lýðfræðilegu upplýsingar sem óskað er eftir.
Kjósir þú að nýta þér endurgreiðslutilboð ert þú beðin/nn um reikningsupplýsingar (reikningsnúmer og kennitölu) svo hægt sé að endurgreiða þér ávinninginn af verslun í virkum tilboðum.
Til að bæta þjónustuna safnar Meniga einnig tæknilegum upplýsingum um hvernig þú notar Meniga (t.d. með hvaða vafra eða appi þú nálgast þjónustuna, hvaðan og hvaða virkni þú notar helst. Þannig komumst við að því hvaða þættir af okkar þjónustu virka best og hvernig megi bæta aðgengi og virkni öllum notendum til hagsbóta.
Ef þú hefur samband við Meniga vegna spurningar eða lausn á tæknilegu vandamáli geymir Meniga einnig þá samskiptasögu.
Við söfnum, geymum og greinum gögn í gegnum þjónustu okkar í eftirfarandi tilgangi:
Til að Meniga geti veitt þér þá þjónustu sem þú hefur skráð þig fyrir greinir Meniga neyslumynstur þitt út frá færslum sem fylgja þeim bankareikningum og kortum sem þú hefur tengt við kerfið. Meniga flokkar helstu tekju- og útgjaldaliði og tengir færslur við það fyrirtæki sem verslað var við (ef við á). Tilgangur þessarar úrvinnslu er að útbúa fyrir þig einfalda yfirsýn á heimilisfjármálin sem og að veita nýja innsýn í formi aðgengilegs notendaviðmóts, skýrslna og tiklynninga.
Að auki nýtir Meniga færsluupplýsingar til að taka saman ópersónugreinanlegar markaðsgreiningar sem seldar eru fyrirtækjum og/eða birtar í fjölmiðlum, til að upplýsa almenning um stöðuna á íslenskum markaði.
Þínar persónuupplýsingar eru aldrei gerðar aðgengilegar þessum fyrirtækjum og ef greiningar ná ekki lágmarkskröfu um fjölda notenda eru þær skýrslur ekki gerðar aðgengilegar fyrirtækjum.
Meniga greinir einnig notkun þína á appi eða vefsvæði Meniga til að geta bætt og þróað þjónustuna enn frekar.
Þessi greining felst meðal annars að telja hvaða þætti þjónustunnar þú notar helst, hversu oft þú skráir þig inn, hvaðan og með hvaða vafra og stýrikerfi.
Meniga safnar upplýsingum frá notendum, m.a. í gegnum ábendingar í gegnum samfélagsmiðla og töluvpósti, í gegnum notendahegðun á appi og vefkerfi Meniga.is eða notendaprófunum, til þess að þróa nýjar vörur og lausnir sem gætu nýst notendum. Endurgjöf notenda er okkur mjög mikilvæg í allri þróunarvinnu.
Auk þess nýtir Meniga færsluupplýsingar, lýðfræðilegar upplýsingar eða tölfræðilegar greiningar til að sýna þér hvernig þitt neyslumynstur er í samanburði við samanteknar (og ópersónugreinanlegar) upplýsingar um aðra notendur.
Meniga nýtir einnig þitt persónulega neyslumynstur til að finna heppileg tilboð frá fyrirtækjum sem taka þátt í endurgreiðslutilboðum Meniga. Þínar persónupplýsingar (bankafærslur tengdar nýtingu tilboða þar með talið) eru hins vegar aldrei veittar þessum fyrirtækjum undir neinum kringumstæðum.
Meniga safnar upplýsingum um notkun á vörum Meniga til þess að skilja betur hvaða þættir þjónustunnar nýtast notendum best og til þess að mæla viðbrögð notenda við nýjum vörum eða uppfærslu á núverandi vörum. Árangursmælingarnar eru lykilhluti af Viðhaldi og þróun á okkar þjónustu og Þróun nýrra vara sem má lesa um hér að ofan.
Meniga er þjónusta sem er þróuð af notendum og fyrir notendur. Það er Meniga mjög mikilvægt að geta átt í opnum samskiptum við þig og aðra notendur. Bæði svo við getum upplýst þig um uppfærslur, nýjar vörur, ný endurgreiðslutilboð eða aðrar mikilvægar breytingar á okkar þjónustu og einnig svo þú eigir auðvelt með að láta okkur vita ef einhver hluti þjónustunnar liggur niðri, er ekki að nýtast sem skildi, þú upplifir óánægju með uppfærslur eða ef þjónustan er að nýtast vel. Við fögnum allri endurgjöf á okkar þjónustu og reynum að bregðast fljótt við.
Annars vegar, geymum við upplýsingar um netföng (notandanöfn) notenda og getum þannig sent þér tölvupóst með tilkynningum um uppfærslur, nýjar vörur, ný endurgreiðslutilboð eða aðrar mikilvægar breytingar. Í hverjum tölvupósti gefst þér kostur af afskrá þig fyrir þannig tilkynningum og þá verður netfangi þínu eytt af þeim lista. Netfangið verður þó enn til í gagnagrunnum Meniga fyrir auðkenningu á innskráningu á app og/eða vefkerfi Meniga.
Hins vegar, söfnum við og geymum gögn sem gera okkur kleift að eiga í beinum samskiptum við þig og aðra notendur í gegnum app og/eða vefkerfi Meniga.
Geymsla færslna af bankareikningum og kortum uppfyllir ströngustu öryggiskröfur (sambærilegt við öryggi banka) og er með þeim hætti að ekki er hægt að nálgast upplýsingar um þig út frá einföldum persónupplýsingum eins og kennitölu eða reikningsnúmeri, þar sem að Meniga geymir þær upplýsingar ekki (þessar upplýsingar eru geymdar dulkóðaðar ef þær hafa verið gefnar upp sem hluti af þátttöku þinni í endurgreiðslutilboðum)
Að auki hafa einungis starfsmenn Meniga með sérstök réttindi aðgang að þeim grunnum sem geyma færslugögn og önnur notendagögn. Allar uppflettingar starfsmanna eru auk þess skráðar.
Meniga deilir aldrei þínum persónuupplýsingum. Einu upplýsingarnar sem Meniga deilir eru tölfræðiskýrslur og/eða – greiningar sem byggja á samanteknum og ópersónugreinanlegum gögnum frá hópi notenda, sjá "Ástæða gagnasöfnunar" hér að ofan.
Eftirfarandi hlutar geyma upplýsingar um hvernig þú getur nálgast, eytt eða uppfært þínar upplýsingar:
Allar þær færslur af bankareikningum og kortum sem Meniga geymir sem og aðrar persónuupplýsingar sem þú hefur látið af hendi eru aðgengilegar í kjölfar innskráningar á meniga.is.
Þar getur þú einnig leiðrétt og/eða uppfært þær persónuupplýsingar sem þú hefur kosið að deila með Meniga.
Meniga gerir þér kleift að taka afrit af þínum upplýsingum sem geymdar eru gagnagrunnum Meniga. Þetta á þó ekki við um færsluupplýsingar þar sem þær eru þér aðgengilegar hjá þeirri banka- eða fjármálastofnun sem þú ert í viðskiptum við. Til þess að óska eftir afriti af þínum upplýsingum getur þú haft samband við okkur í gegnum oryggismal (hja) meniga.is.
Ef þú ákveður að hætta að nota Meniga með því að eyða Meniga notandareikningnum þínum mun Meniga eyða öllum persónupplýsingum um þig sem eru geymdar hjá Meniga (þar með talið færslum af reikningum og kortum sem og stöðu reikninga og korta).
Undantekningin frá þessu eru færslur sem tengjast áunninni endurgreiðslu í endurgreiðslutilboðum, hafir þú kosið að nýta þér þau.
Meniga eyðir hins vegar ekki gögnum sem hafa verið gerð ópersónugreinanleg með öllu, sem á við þegar þín gögn hafa verið tekin saman með gögnum annarra notanda og þar af leiðandi ekki hægt að tengja aftur við þig með neinum hætti.
Persónuvernd og öryggi hafa ávallt verið Meniga mjög mikilvæg enda grunnstoð í því trausti sem ríkir á milli okkar og notenda þjónustunnar. Í upphafi starfsemi Meniga, höfðum við frumkvæði af því að hafa samband við Persónuvernd og óska eftir úttekt þeirra á starfsemi Meniga til að tryggja að hún væri í samræmi við lög og reglur. Öryggisráðstafanir og virðing fyrir persónuvernd okkar notenda hefur því verið órjúfanlegur hluti af genamengi Meniga frá upphafi og því fögnum við bættri löggjöf sem tryggir enn frekar rétt okkar notenda og leggur fyrirtækjum skýr mörk um hvernig nýta megi persónuupplýsingar einstaklinga.
Meniga endurskoðar reglulega þessa öryggis- og persónuverndarstefnu og fylgir henni þegar kemur að vinnslu þinna upplýsinga.
Öll samskipti eru dulkóðuð, bæði við notendur og banka (auðkennt í vafranum með „https“ forskeyti á undan vefslóðinni og mynd af hengilás). Gagnagrunnar Meniga.is eru sömuleiðis dulkóðaðir.
Aðgangsstjórnun er að mestu leyti eins og í netbanka, t.d. sjálfvirk útskráning eftir 15 mínútur, kröfur um „öruggt“ lykilorð o.fl. Vefurinn og gagnagrunnar hans eru hýstir í læstu og vöktuðu herbergi hjá öryggisvottuðum hýsingaraðila. Núverandi hýsingaraðili Meniga er Origo sem er með ISO-27001 öryggisvottun.
Upplýsingar notenda eru eingöngu aðgengilegar, og eingöngu eftir þörfum, starfsfólki Meniga sem starfar við að reka, þróa, eða bæta þjónustuna. Allir starfsmenn Meniga eru með hreint sakavottorð og bundnir þagnarskyldu um allt sem þeir kunna að verða áskynja um hagi notenda. Meniga rekur virkt eftirlit með starfsmönnum og áskilur sér rétt til að kæra öll brot á þagnarskyldu til viðeigandi yfirvalda. Eftirlit Meniga er m.a. fólgið í því að allur aðgangur starfsmanna að gögnum notenda er skráður í gagnagrunn svo öryggisstjóri Meniga geti ávallt séð hverjir hafa skoðað upplýsingar.
Öryggisstjórar íslenskra fjármálastofnana sem Meniga á í samstarfi við hafa farið yfir öryggismál Meniga og staðfest fyrir sitt leyti að Meniga uppfylli ströngustu öryggiskröfur.
Meniga eitt af örfáum íslenskum fyrirtækjum sem er með EV SSL skírteini fyrir dulkóðuð netsamskipti frá Verisign (auðkennt í vöfrum með grænum lit í vefslóðarreit). Auk þess er Meniga með „Hacker-safe“ vottun frá McAfee sem staðfestir að ekki sé hægt að nota þekktar aðferðir til að brjótast inn í vefþjóna Meniga.is
Stefna Meniga er að geyma og vinna með eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og mögulegt er til að geta veitt þjónustuna. Ekki er t.d. beðið um nafn, kennitölu, heimilisfang eða aðrar persónuupplýsingar. Til að geta átt samskipti við notendur óskar Meniga þó eftir netfangi, sem í sumum tilvikum getur verið persónugreinanlegt (notendur geta þó valið að nota ópersónugreinanlegt netfang). Ef notendur nota ópersónugreinanlegt netfang og láta Meniga ekki hafa farsímanúmer þá hefur Meniga engar persónugreinanlegar upplýsingar undir höndum um notendur.
Meniga hefur aðgang að færsluupplýsingum en ekki bankareikningsnúmerum eða greiðslukortanúmerum (að beiðni Meniga láta fjármálastofnanir okkur hafa brengluð reikningsnúmer og greiðslukortanúmer þegar gögn eru sótt til þeirra).
Kjósi notandi að taka þátt í endurgreiðslutilboðum Meniga fer Meniga fram á reikningsnúmer og kennitölu til að geta greitt áunna endurgreiðslu á valinn reikning. Bæði reikningsnúmer og kennitala er dulkóðuð í grunnum Meniga.
Meniga hefur aðgang að ítarlegum fjárhagsupplýsingum og mun meðhöndla allar upplýsingar notenda sem persónuupplýsingar og heitir því að starfa að öllu leyti í samræmi við íslensk lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Meniga hefur tilkynnt Persónuvernd um starfsemi sína eins og lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga gera ráð fyrir.
Meniga hefur ekki aðgang að framkvæmd neinna fjárhagslegra aðgerða fyrir hönd notenda. Meniga hefur eingöngu (með leyfi notenda) lesaðgang að færslum.
Notendur geta afturkallað aðgang að reikningum og greiðslukortum hvenær sem er í netbankanum sínum eða í appi eða á vef Meniga.
Á eftir stuttri lýsingu á þjónustu Meniga eru hér fyrir neðan útlistaðir þeir skilmálar sem eiga við um aðgang þinn og notkun á vefnum Meniga.is sem íslenska einkahlutafélagið Meniga Iceland ehf., kt 571215-0200 (hér eftir nefnt Meniga), á og rekur. Með því að nota Meniga.is samþykkir þú að hlýta öllum notkunarskilmálum Meniga eins og þeir eru á hverjum tíma (sjá líka: „Breytingar á skilmálum“ hér fyrir neðan).
Þjónusta Meniga inniheldur upplýsingar, virkni og stjórntæki fyrir fjármál einstaklinga í formi hugbúnaðar sem flokkar og greinir bankafærslur notenda (færslur af bankareikningum og greiðslukortum) og gerir notendum kleift að: Hafa yfirsýn yfir tekjur og gjöld, greina fjármálin og finna leiðir til að spara eða nýta fjármuni betur.
Þjónustan inniheldur einnig greinar og fróðleik um heimilisfjármál og hefur það markmið að stuðla að ábyrgri fjármálahegðun og gerir fólki kleift að stjórna heimilisfjármálunum á sem auðveldastan og skilvirkastan hátt.
Hluti þjónustunnar felst í að birta reglulega sparnaðarráð og hagnýtar upplýsingar sem kunna að vera sniðnar að þínu persónulega neyslumynstri eins og það birtist í þeim upplýsingum sem Meniga geymir, fyrirspurnum til þriðja aðila eða öðrum gögnum.
Þjónustan kann einnig að vera fjármögnuð að hluta með auglýsingum á vefsvæði Meniga. Allar auglýsingar á vefsvæði Meniga birtast á vel afmörkuðum auglýsingasvæðum og er gerður skýr greinarmunur á þeim og sparnaðarráðum og hagnýtum upplýsingum sem Meniga ritstýrir og enginn hefur greitt fyrir.
Meniga kann að stjórna birtingu auglýsinga út frá þínu persónulega neyslumynstri eins og það birtist í þeim upplýsingum sem Meniga geymir, fyrirspurnum til þriðja aðila eða í öðrum gögnum. Auglýsendum á vefsvæði Meniga er aldrei veittur aðgangur að þínum persónulegu upplýsingum, hvort sem það eru persónuupplýsingar, fjármálaupplýsingar eða önnur gögn.
Sparnaðarráð, hagnýtar upplýsingar og auglýsingar sem kunna að birtast á vefsvæði Meniga geta innihaldið vefkrækjur á vefsvæði þriðja aðila. Þjónusta Meniga er ókeypis fyrir notendur vefsins. maka og lykilorð maka. Loks slærð þú inn þitt aðgangsorð í Meniga og staðfestir. Þá birtast öll kort og reikningar heimilsins á sameiginlegum aðgangi ykkar í Meniga.
28.12.2015
Vegna aukinna umsvifa erlendis hefur Meniga ákveðið að ráðast í skipulagsbreytingar sem fela í sér að nýtt félag, Meniga Iceland ehf. (kt. 571215–0200), hefur verið stofnað um innlenda starfsemi Meniga og tekur nýja félagið yfir alla starfsemi Meniga hf. (kt. 5003090160; áður Meniga ehf.) á Íslandi frá og með 1.1.2016 og mun allt starfsfólk Meniga hf. flytjast til Meniga Iceland ehf. á sama tíma.
Þessari skipulagsbreytingu fylgja engar aðrar breytingar á rekstri, notkunarskilmálum eða þjónstu Meniga á Íslandi. Eina breytingin er sú að frá og með 1.1.2016 færist starfsemin yfir til Meniga Iceland ehf.
Skilmálar þessir gilda um endurgreiðslu til notenda vegna afsláttar samkvæmt tilboðum sem notendum standa til boða. Meniga Iceland ehf., kt. 621014-0130 (hér eftir „Meniga Iceland“), sem er í 100% eigu Meniga ehf., sér um að afla tilboða og kynna fyrir notendum í kerfi Meniga og eiga skilmálar þessir við um réttarsamband notenda Meniga og Meniga Iceland. Með því að staðfesta skilmála þessa staðfesta notendur bæði að þeir skilji og samþykki þessa skilmála og réttarsamband sitt við Meniga Iceland. Jafnframt veitir notandi Meniga Iceland fulla heimild til að fá þær upplýsingar og gögn sem þörf er á úr kerfi Meniga ehf. til þess að unnt sé að ljúka vinnslu við tilboðin, þó ávallt innan þeirra marka sem almennar skilmálar og öryggis- og persónuverndarstefna Meniga hverju sinni setja.
Meniga Iceland mun af og til bjóða notendum upp á tilboð þar sem tiltekin fyrirtæki og söluaðilar bjóða notendum afslátt ef verslað er á tilteknu tímabili, að því gefnu að notandi greiði með greiðslukorti sem tengt er við kerfi Meniga. Tilboðin og þar með afslátturinn virkjast ekki ef notandi greiðir með öðrum hætti, t.d. reiðufé. Tilboðin munu birtast í kerfi Meniga.
Notendur skulu almennt staðfesta þátttöku í tilboðum inn á vef Meniga, en í ákveðnum tilfellum er staðfestingar ekki krafist og þátttaka getur verið sjálfvirk. Í þeim tilfellum þar sem krafist er staðfestingar og slík staðfesting liggur ekki fyrir verður tilboðið ekki virkt gagnvart viðkomandi notanda. Eftir að notandi hefur staðfest skilmála þessa gilda þeir um öll tilboð sem notendur taka þátt í.
Notendur gera sér grein fyrir því að tilboðum kann að vera eingöngu beint til tiltekinna hópa af notendum, sem valdir eru á ópersónugreinanlegan hátt eftir tilteknum breytum, t.a.m. lýðfræðilegum, búsetu, neysluhegðun, kyni eða öðrum flokkum. Slík tilboð taka þá eingöngu til viðkomandi hópa en ekki annarra.
Notandi greiðir fullt verð fyrir vöru og/eða þjónustu til viðkomandi fyrirtækis samkvæmt hverju tilboði. Sá afsláttur sem fyrirtækið greiðir verður greiddur til Meniga Iceland sem tekur við greiðslunni fyrir hönd notanda og greiðir svo til notanda í samræmi við ákvæði skilmála þessara.
Þegar Meniga Iceland hefur borist tilkynning um færslu notenda hjá fyrirtæki á tímabili þegar tilboð var í gangi tilkynnir Meniga Iceland viðkomandi notanda það. Slík tilkynning jafngildir þó ekki að endurgreiðsla hafi borist. Meniga Iceland sendir viðkomandi fyrirtæki greiðslutilmæli vegna endurgreiðslu 1. hvers mánaðar eftir að tilboð fór fram. Notandi getur ávallt séð heildarstöðu sína hverju sinni inni í kerfi Meniga. Um útgreiðslu fjár vísast til 8. gr. skilmála þessara.
Notandi gerir sér grein fyrir því að endurgreiðsla til hans berst ekki fyrr en Meniga Iceland hefur sent út greiðslutilmæli 1. hvers mánaðar eftir að gildistími hvers tilboðs klárast og ennfremur að greiðsla til notanda berst ekki fyrr en söluaðili hefur greitt til Meniga Iceland, sbr. 8. gr. skilmálanna.
Þær greiðslur sem Meniga Iceland tekur við fyrir hönd notenda verða varðveittar aðgreint frá öðrum fjármunum félagsins á sérstökum reikningi, sem getur verið fjárvörslureikningur, sérstakur bankareikningur eða annars konar sambærilegur reikningur á vegum Meniga Iceland. Meniga Iceland áskilur sér allan rétt til þess að breyta um reikning eða reikningsform vegna varðveislu fjárins. Þá hefur Meniga Iceland heimild til þess að fela fjármálafyrirtæki eða aðila sem hefur leyfi til greiðsluþjónustu samkvæmt lögum nr. 120/2011, um greiðsluþjónustu, alla umsýslu viðkomandi bankareikningsins og sjá um endurgreiðslu til notenda.
Notendum verður kynnt í hverju og einu tilboði með hvaða hætti afslátturinn sem kemur til endurgreiðslu ákvarðast. Sem dæmi getur afslátturinn verið ákveðið hlutfall af kaupverði, eða föst upphæð. Ef notanda stendur til boða fleiri en eitt tilboð frá sama söluaðila á sama tíma þá gildir sá afsláttur sem er hagstæðastur fyrir notanda hverju sinni en safnast ekki upp á milli tilboða hjá sama söluaðila.
Líkt og rakið er í 5. gr. skilmálanna þá sendir Meniga Iceland greiðslutilmæli til þeirra fyrirtækja, sem hafa tekið þátt í tilboði, 1. hvers mánaðar eftir að tilboði lýkur. Það fé, sem Meniga Iceland hefur móttekið fyrir hönd notenda sinna, verður greitt til hvers notenda 18. þess mánaðar. Beri 18. upp um helgi verður greitt út fyrsta virka dag á eftir. Greiðslan berst inn á reikning sem notandi tilgreinir í kerfi Meniga. Notandi ber ábyrgð á því að tilgreina réttan reikning og gerir sér grein fyrir því að Meniga getur ekki staðreynt hvort reikningur sé sannarlega í eigu hvers og eins notanda. Ennfremur getur Meniga Iceland ekki afturkallað greiðslu sem greidd hefur verið inn á reikning sem tilgreindur hefur verið af notanda. Greiðsla fer fram sjálfkrafa og ekki þarf sérstaka beiðni notanda til þess. Notendur geta ekki fengið féð greitt út á öðrum tíma eða á annan hátt.
Takist endurgreiðsla ekki á tilsettum tíma, s.s. vegna þess að bankareikningur er ekki lengur til staðar, mun Meniga Iceland leita leiða til þess að hafa upp á notandanum með öðrum hætti og greiða féð til viðkomandi. Gangi það ekki eftir mun Meniga Iceland varðveita féð eins og almennar reglur um fyrningu segja til um.
Notendur gera sér fulla grein fyrir því að endurgreiðslur til sín eru háðar því að Meniga Iceland fái greitt frá viðkomandi söluaðila. Meniga Iceland tekur ekki ábyrgð á því að greiðslur frá söluaðila berist og á notandi ekki neina kröfu á Meniga Iceland í slíkum tilfellum. Meniga Iceland mun hins vegar beita öllum tiltækum leiðum, sem líklegar eru til árangurs, til þess að innheimta féð frá viðkomandi söluaðila komi til vanskila og upplýsa viðkomandi notendur um framgang mála í slíkum tilfellum, eins og unnt er.
Kjósi Meniga Iceland, þótt því sé það ekki skylt, að greiða til notenda kröfu vegna endurgreiðslu sem er í vanskilum hjá fyrirtæki, þá staðfestir notandi að Meniga Iceland leysi til sín kröfuna á hendur söluaðila og að notandi framselji Meniga Iceland kröfu sína á hendur viðkomandi söluaðila.
Með því að staðfesta skilmála þessa veitir notandi Meniga Iceland fullt og ótakmarkað umboð til þess að móttaka og varðveita fyrir sína hönd endurgreiðslur frá fyrirtækjum vegna tilboða og felst að öðru leyti á skilmála þessa. Ennfremur að Meniga Iceland hefur heimild til þess að koma fram fyrir hönd notanda gagnvart fyrirtækjum sem taka þátt í tilboðum á vegum Meniga Iceland og sækja það fé sem notandi á inni hjá fyrirtækinu komi til vanskila, sbr. 9. gr. skilmála þessara.
Notandi gerir sér grein fyrir því að Meniga Iceland varðveitir það fé sem fæst endurgreitt fyrir sína hönd þar til það er greitt út til notanda í samræmi við ákvæði þessara skilmála. Notandi gerir sér grein fyrir og samþykkir að ekki leggjast ofan á þá fjárhæð sem hann greidda út frá Meniga Iceland vextir eða verðbætur og á notandi ekki kröfu á hendur Meniga Iceland af þeim sökum.
Meniga er þjónusta sem er í stöðugri þróun. Meniga Iceland áskilur sér því rétt að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði notendum þjónustunnar tilkynnt í tölvupósti um allar breytingar á viðeigandi hátt með 10 daga fyrirvara. Breytingar þessar geta varðað vörur sem eru notaðar og virkni þeirra. Noti notandi þjónustuna að 10 daga fyrirvaranum liðnum verður litið svo á að hann hafi samþykkt skilmálana í breyttri mynd. Sætti notandi sig ekki við skilmálana eftir breytingu skal hann hætta notkun þjónustunnar án tafar og skrá sig úr henni á vefsíðunni meniga.is.