Ofbeldi

by Dauðyflin

/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.

      $8 USD  or more

     

1.
00:55
2.
01:37
3.
02:07
4.
01:38
5.
6.
01:57
7.
8.
01:58
9.
01:18
10.
01:09
11.
02:17

credits

released May 5, 2017

Mastered by Will Killingsworth at Dead Air Studios
Released on Iron Lung Records
Buy physical LP at ironlungpv.bandcamp.com

tags

license

about

Dauðyflin Reykjavík, Iceland

Alexandra - Vocals
Júlíana - Guitar
Dísa - Bass
Fannar - Drums

contact / help

Contact Dauðyflin

Streaming and
Download help

Track Name: Ofbeldi
Fyrirlitningu minni verður ekki lýst með orðum
Bara með háværum gíturum og morðum

Langar að brjóta rúður
Langar að lykla bíla
Langar að sparka í þig
Skalla þig og kýla
Langar að kveikjí
Leggja Reykjavík í eyði
Ég hata þig, hata allt
Ég er að springa úr reiði

Ofbeldi, ofbeldi
Ég er að springa úr bræði
Ofbeldi, ofbeldi
Ég vil að eyrum blæði
Track Name: Martröð
Ég er þín langversta martröð
Og enginn getur stöðvað mig
Ég er hættulegur menningarmorðingi
Tortímandi allra góðra gilda

Ég er martröð

Undir þessu grimma yfirborði
Leynist hvorki blíða né mýkt
Ég er hryllingur holdi klæddur
Og ég myrði mæjónes eins og þig

Martröð
Track Name: Óvinir
Ég skít yfir þig allan
Því allt sem þú ert
Er allt sem ég hata
Glataðari sál
Væri vonlaust að finna
Sættu þig við það
Þú ert rotinn að innan

Ég hata þig - við erum óvinir

Sorglegt að sjá
Hvað þú reynir og reynir
Það er lifandi ljóst
Hvernig framtíð þig dreymir
Hungur og fátækt
Þú vilt vaða í auði
Ég vona að þín bíði bara
Eymd, kvöl og dauði
Track Name: Meðvirkni
Fullur yfirlætis
Þú gengur hinn gullna meðalveg
Ég kem úr hörðustu átt
Rek hnefann í fésið á þér

Ég er kannski hræsnari
En þú ert gunga og rotta
Ræfill og aumingi, ekki góður gæi
Bara talsmaður fasistahrotta
Track Name: Útlendingastofnun
Þið sáið fyrir morði
Á jörðum nasista
Þó þið mokið ekki
Sjálf í grafirnar

Brottvísun er aftaka
Þið eruð böðlar

Morðingjar
Track Name: Hamarinn
Láttu mig vera
Drullaðu þér burt
Ef þú hættir ekki að snerta mig
Legg ég hamar að hönd, geri bein þín að mjöli
Þú rembist við að heilla mig
Þú hættir ekki að stæra þig
Þú segist vilja negla mig
En ég vil taka hamarinn og mölva á þér andlitið

Síðasta sem þú sérð: hamarinn!
Síðasta sem þú heyrir: hamarinn!
Síðasta sem þú finnur: hamarinn!
Síðasta sem þú sérð: hamarinn!
Track Name: Ljótir Kommúnistar
Ljót og illa þefjandi
Vond og illa meinandi
Hroðinn fær útrás í útliti okkar
Hatursfullir hræsnarar
Grasétandi grasasnar
Aumingjar

Ljótir kommúnistar

Óþrifalegir hálfvitar
Barnalegir heimskingjar
Ónytjungar, skíthælar
Dauðyfli og lúserar
Föðurlandssvikarar
Viðbjóðslegir anarkistar
Track Name: Níðstöng
Afskorið höfuð
Stjaksett til höfuðs
Heimsvaldi
Arðráni

Níðstöng

Hirðum af auðvaldinu
Höfuðið
Track Name: Þöngulhaus
Þöngulhaus!
Þú gerir þig breiðann
Drullusokkum eins og þér
Langar mig að eyða

Þöngulhaus!
Þú gasprar endalaust
Ég hef fengið nóg
Af þér og þinni raust

Þöngulhaus!

Þöngulhaus!
Þú gerir þig breiðann
Drullusokkum eins og þér
Langar mig að eyða

Þöngulhaus!
Þú gasprar endalaust
Og ég hef fengið nóg
Track Name: Peningar
Við étum dauðann
Úr niðursuðudós
Við klæðumst fötum
Úr örvæntingu og eymd
Í heitum pottum
Böðum í blóði
Því allir peningar
Eru blóðpeningar

Peningar
Track Name: Túrblettir
Túrblettir og bremsuför
Kaldur sviti - Ég finn beinin braka
og styn

Maskaraklessur og sorgarrendur
Kalt kaffi og hálfreyktar sígarettur

úr mér flæðir
úr mér blæðir