iOS

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita

iOS (þekkt sem iPhone OS áður en júní 2010) er stýrikerfi frá Apple fyrir fartæki Apple, snjallsímann iPhone og spjaldtölvuna(e. tablet) iPad. iOS kom fyrst út á iPhone en er nú fáanlegt fyrir iPod touch, iPad og Apple TV (sérstök útgáfa af iOS sem kallast nú tvOS, var fyrst byggt á OS X). Apple gefur ekki leyfi til að nota stýrikerfið á öðrum tækjum. Með netversluninni App Store er hægt að hlaða forritum niður í þessi tæki og frá og með 31. maí 2011 eru rúmlega 500.000 forrit til sölu í versluninni.[1] Á síðasta ársfjórðungi 2010 var markaðsdeild iOS á alþjóðlega snjallsímastýrikerfismarkaðinum 16%, í þriðja sæti á eftir Android frá Google og Symbian frá Nokia, ef miðað er við sölu á tækjum sem nota stýrikerfin,[2] en nú er iOS í öðru sæti á eftir Android.

Notendaviðmót iOS er byggt á beinum samskiptum við fjölsnertiskjá. Notandinn stjórnar tækinu með fingrahreyfingum og lyklaborði á skjá (líka er hægt að nota viðtengt lyklaborð en kerfið er ekki hannað fyrir mús). Tækið bregst einnig við sé tækinu hallað eða snúið. Sé tækinu, til dæmis, snúið um 90 gráður þá heldur mynd á skjá áfram að snúa upp. iOS er byggt á grunnhluta Mac OS X stýrikerfisins, sem var gert fyrir borðtölvur og að einhverju leyti eru forritaskil því lík (t.d. Core Foundation og Foundation Kit en notar t.d. Cocoa Touch en ekki Cocoa úr OS X) en ekki nógu lík til að forrit gangi óbreytt milli stýrikerfanna (OS X notar líka viðmót gert fyrir mús t.d. en hefur að auki texta-skel fyrir hefðbundinn Unix-aðgang, sem notendur hafa ekki aðgang að í iOS).

Heimildir[breyta | breyta frumkóða]

  Þessi Applegrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.