Seúl

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita
Kortið sýnir staðsetningu Seúl í Suður-Kóreu.

Seúl er höfuðborg Suður-Kóreu og jafnframt stærsta borg landsins. Nafn borgarinnar er dregið af forna kóreska orðinu Seorabeol eða Seobeol, sem þýðir „höfuðborg“. Borgin var áður þekkt undir nöfnunum Wiryeseong, Hanyang og Hanseong.

Seúl er staðsett í norðvesturhluta landsins, við Hanfljót. Borgin nær yfir 605,52 ferkílómetra. Íbúar Seúl eru rúmlega tíu milljónir talsins. Sé allt höfuðborgarsvæði ð talið með eru íbúarnir um tuttugu milljónir. Seúl er ein af fjölmennustu og þéttbýlustu borgum heims.

Seúl

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]

  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.