Súrínam
Hnit: 04°18′00″N 56°00′00″V / 4.30000°N 56.00000°V
Republiek Suriname | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: „Justitia - Pietas - Fides (latína: Réttlæti - Trúrækni - Tryggð)“ |
|
Þjóðsöngur: God zij met ons Suriname |
|
Höfuðborg | Paramaríbó |
Opinbert tungumál | Hollenska |
Stjórnarfar | Lýðveldi Dési Bouterse |
Sjálfstæði | |
- frá Hollandi | 25. nóvember 1975 |
Flatarmál - Samtals - Vatn (%) |
92. sæti 163.821 km² 1,1 |
Mannfjöldi - Samtals (2013) - Þéttleiki byggðar |
167. sæti 566.846 2,9/km² |
VLF (KMJ) - Samtals - á mann |
áætl. 2011 5,060 millj. dala (152. sæti) 12.398 dalir (78. sæti) |
Gjaldmiðill | súrínamskur dalur |
Tímabelti | UTC -3 |
Þjóðarlén | .sr |
Landsnúmer | 597 |
Súrínam er land á norðausturströnd Suður-Ameríku. Súrínam á landamæri að Gvæjana í vestri, Frönsku Gvæjana í austri og Brasilíu í suðri. Í norðri liggur landið að Atlantshafi. Hollendingar lögðu landið undir sig árið 1667 og stofnuðu þar nýlenduna Hollensku Gvæjana. Landið varð eitt af löndum Konungsríkisins Hollands árið 1954 og hlaut fullt sjálfstæði 25. nóvember 1975. Opinbert tungumál Súrínam er hollenska, en 30% þjóðarinnar talar sranang, sem er blendingsmál sem byggist á ensku.
Súrínam er minnsta fullvalda ríki Suður-Ameríku. Íbúar eru rúmlega hálf milljón og búa flestir á norðurströnd landsins þar sem höfuðborgin Paramaríbó er. Helsta útflutningsvara landsins er báxít. Um 80% landsins eru þakin regnskógi.
Stjórnsýsluskipting[breyta | breyta frumkóða]
Súrínam skiptist í tíu umdæmi: |
Að auki skiptist landið í 62 byggðir (ressorten).