Sjaríalög

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita
Beiting sjaríalaga eftir löndum.
     Sjaríalög hafa engin áhrif á réttarkerfið.      Sjaríalög gilda um einkamál múslima.      Sjaríalög eru fullgild, líka í glæpamálum.      Beiting sjaríalaga er mismunandi eftir landshlutum.

Sjaríalög eru þau trúarlög sem múslimar hlýða. Þau byggjast á lífsreglum íslams eins og fram koma í kóraninum og hadíð. Orðið sjaría á uppruna sinn í arabíska orðinu sharīʿah, sem þýðir „siðferðisleg og trúarleg lög byggð á spádómi“, ólíkt lögum settum af mönnum.

Sjaríalög snerta mörg svið lífsins, svo sem glæpi, stjórnmál, hjónabandssamninga og fjármál, auk þess að taka á einkamál eins og kynmök, hreinlæti, matarhefðir, mannasiðir, bænagjörð og föstu. Í sögulegu samhengi eru sjaríalög eitt mest einkennandi atriði íslams. Í þrengri skilgreiningu sinni eru sjaríalög talin vera óskeikul orð Guðs.

Sjaríalög eru byggð á tveimur aðalheimildum: kóraninn og hadíð. Stuðst er við svokölluð afleidd lög til að takast á við mál sem ekki eru til umfjöllunar í þessum tveimur heimildum. Afleiðing sjaríalaga er mismunandi eftir sértrúarflokkum (t.d. sunní og sjía) og lögspekiskólum eins og Hanafi, Maliki, Shafi'i, Hanbali og Jafari.

Í löndum þar sem meirihluti íbúa er íslamskur eru sjaríalög geymd að hluta eða í heild í löggjöfinni. Dæmi um slík lönd eru Sádí-Arabía, Súdan, Íran, Írak, Afganistan, Pakistan, Brúnei, Katar, Jemen og Máritanía. Í löndum sem beita sjaríalögum eru refsingar á borð við afhöfðun, svipuhögg og grýting oft notaðar réttarfarslega eða ekki. Flest lönd heimsins viðurkenna ekki sjaríalög en í sumum löndum njóta þau viðurkenningar að hluta í sambandi við skilnaðar- og erfðamál múslima.

Deilt hefur verið um hvort sjaríalög samræmist veraldlegum lögum eða ekki, þar sem mörg ákvæði sjaríalaga stangast á við veraldlegar hugmyndir um ríkisstjórn, mannréttindi, hugsanafrelsi og kvenréttindi.

  Þessi trúarbragðagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.