Kaffi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita
Kaffi í kaffibolla.

Kaffi er koffínríkur drykkur sem gerður er úr brenndum baunum kaffirunnans og er yfirleitt borinn fram heitur eða ískaldur. Kaffi er ein algengasta verslunarvara heims, næst á eftir hráolíu. Heimsframleiðsla kaffis var 6,7 milljón tonn árlega 1998-2000. Langmesta framleiðslan fer fram í Brasilíu.

Kaffirunninn er upprunninn í Eþíópíu og var fluttur þaðan til Jemen á miðöldum þar sem hafnarborgin Mokka varð helsta útflutningshöfn kaffis. Kaffi náði miklum vinsældum á Arabíuskaganum og var flutt á markað í Evrópu á 16. öld af Hollenska Austur-Indíafélaginu og Breska Austur-Indíafélaginu. Það náði síðan mikilli útbreiðslu í Evrópu og Norður-Ameríku á 17. öldinni.

Bragð kaffis fer fyrst og fremst eftir tegund en einnig eftir ræktunarskilyrðum, meðhöndlun, brennslu, mölun og aðferð við uppáhellingu.


Grasafræði kaffis[breyta | breyta frumkóða]

Coffee Bean Structure
1 "center cut", 2 fræhvíta, 3 silfurhýði (epidermis), 4 pergament (endocarp), 5 pektín lag, 6 aldinkjöt (mesocarp), 7 hýði

Kaffirunninn er planta af ættbálknum Rubiaceæ, ætthvíslinni coffea.[1] Runninn telur rúmlega 90 tegundundir en aðeins örfáar þeirra eru ræktaðar til framleiðslu.[2] Tvær hellstu tegundir kaffis sem notaðar eru til ræktunar eru Coffea Arabica og Coffea Canephora, þekkt sem róbusta. Arabica hefur tvisvar sinnum fleiri litninga en róbusta og gefur af sér kaffi með flóknari bragðeiginleika, á meðan róbusta er harðgerðari og fljótvaxnari.[3] Arabica telur um 75-80% af kaffiframleiðslu á heimsvísu, en robusta er um 20%, Coffea liberica er svo undir 2% af heimsframleiðslu og aðrar tegundir eru ræktaðar í enn minna magni.[4][3]

Kaffibaunir eru fræ kaffirunnans sem vaxa inni í ávöxtum þess, kölluðum berjum. Kaffiberið skiptist í nokkur lög, yst er hýðið (exocarp), svo kemur aldinkjötið (mesocarp), næst koma pergamentið (endocarp) og svo silfurhýðið (epidermis) sem saman mynda þunna húð utan um fræin í miðju bersins.[5] Kaffiber innihalda venjulega tvær baunir hvert, lítill hluti kaffiberja inniheldur þó aðeins eina baun, ástæði þess er sú að aðeins eitt fræ bersins hefur frjóvgast. Slíkar baunir kallast "peaberry" vegna ávalar lögunar þeirra, sem orsakast af því að þær vaxa ekki á móti annarri baun. Peaberry baunir eru oft flokkaðar frá öðrum, enda fæst fyrir þær hærra verð.[6] Einnig kemur einstaka sinnum fyrir að kaffiber innihaldi þrjár baunir.

Ræktun[breyta | breyta frumkóða]

Kaffirunninn er uppruninn í norðaustanverðri Afríku en vex nú í allan hringinn um hnöttinn á milli 25 breiddargráðu norður og 25 breiddargráðu suðurs.[7] Ræktunarskilyrði skipta miklu máli við kaffiræktun, runnarnir þurfa réttan jarðveg og veðurfar. Arabica vex í 550 til 1100 metra hæð á heittempruðum svæðum og í 1100 til 2000 metra hæð við miðbauginn, hún þarf 15-24 °C meðalhita. Robusta vex hinns vegar allt frá sjávarmáli og upp í 800 metra og þrífst best í 24-30 C meðalhita.[8][9] kaffirunnar geta orðið allt að 12 metra háir, þar sem þeir vaxa villtir. Við ræktun kaffis eru runnarnir hins vegar klipptir niður í um 2 metra hæð til þess að auðveldara sé að hirða þá og tína berin á uppskerutíma.[10] Runnarnir bera smá hvít blóm sem gefa af sér ber sem eru græn á meðan þau eru óþroskuð, en ýmist rauð eða gul þegar þau eru orðin þroskuð. Arabica ber tvær uppskerur á ári við miðbauginn, en eina á heittempruðum svæðum.[9] Á þeim svæðum sem bera tvær uppskerur á ári eru runnarnir nánast stöðugt í blóma og á sömu greininni geta verið blóm, óþroskuð ber og fullþroskuð ber, bændurnir þurfa því að koma oft að sama runnanum yfir uppskerutímann til þess að tína fullþroskuðu berin. [9][1]

Vinnsluaðferðir[breyta | breyta frumkóða]

Þurr vinnsla[breyta | breyta frumkóða]

Við þurr vinnslu eru fullþroskuð ber fyrst sorteruð frá greinum, laufi, steinum og óþroskuðum berjum sem hafa læðst með við tínsluna. Berin eru svo lögð til þerris í sólinni, þeim er snúið reglulega svo að þau þorni jafnt og til þess að fyrirbyggja mygluvöxt, það getur tekið allt að fjórum vikum að þurrka berin. Rakastig berjanna er um 60% fyrir þurrkun, en undir 12.5% eftir hana. Kaffiberin eru geymd í sílóum þar til þau eru send í millu þar sem aldinkjötið er flysjað utan af baununum í þartilgerðum vélum. Baunirnar eru þá tilbúnar til þess að pakka þeim í sekki og flytja þær út. [11]

Blaut Vinnsla[breyta | breyta frumkóða]

Við verkun á þvegnu kaffi eru fullþroskuð ber sorteruð frá öðrum með því að setja þau í vatn, fullþroskuðu berin sökkva til botns en óþroskuð og ofþroskuð ber, ásamt greinum og laufum fljóta á yfirborðinu. [12] Fullþroskuðu berin eru sett í vél sem fjarlægir aldinkjötið utan af baununum, eftir verður þó þunn slikja af aldinkjöti utan um baunirnar. Til þess að losa þessa slikju utan af baununum eru þær settar í tanka fulla af vatni þar sem slikjan gerjast og brotnar niður. Baunirnar eru svo skolaðar í hreinu vatni og lagðar til þerris. Pergamentið er fjarlægt utan af baununum í vélum og þeim er pakkað. [11][13]

Uppruni og saga kaffidrykkju[breyta | breyta frumkóða]

Hálendi Afríku eru nátturuleg heimkynni kaffirunnans.[14] Talið er að kaffineysla sé upruninn þar sem nú í dag er Eþíópía og að ræktun kaffis hafi jafnvel verið hafinn á níundu öld.[15] Kaffi barst svo til Yemen frá Eþíópíu og fyrstu skriflegu heimildirnar um kaffineyslu eru frá fimmtándu öldinni í Yemen, þar sem kaffi var orðið hluti trúarathafna Sufi bræðralagsins. Þaðan breyddist kaffineysla út um hinn íslamska heim með Sufi fræðunum, fyrst til Egyptalands og svo um öll Mið-Austurlönd.[16]

Innan heimsveldis Ottomana var kaffidrykkja fyrst bönnuð af trúarlegum ástæðum, rétt eins og alkahól. Kaffi var hinns vegar gríðarlega vinsælt þar og mikið notað til þess að halda vöku við langan bænalestur og lögunum var því breytt. Kaffihefðin barst frá Ottómönum til Ítalíu og náði að vörum páfa árið 1600, þegar prestar báðu Clement VIII um að banna þennan drykk sem þeim þótti djöfullegur. Páfanum þótti hins vegar kaffið smakkast vel og sagan segir að hann hafi ákveðið að snúa á Satan með því að blessa kaffið og hafa þar með drykkin af honum.[17] Hinn nýblessaði drykkur náði fljótt vinsældum á Ítalíu og í kjölfarið á því breyddist kaffineysla út um Evrópu. Kaffihús urðu fljótt samkomustaðir þar sem skrafað var um pólitík, dægurmál og annað. Kaffihúsamenningin var fljót að skjóta rótum sínum um Evrópu eftir að fyrsta kaffihúsið á ítalíu var opnað árið 1645, en þrjátíu árum síðar voru kaffihús á Englandi orðin 3000 talsins.[18] Kaffi varð vinsælla en te í Bandaríkjunum eftir "teboðið" í Boston, árið 1671, þegar borgarbúar mótmæltu háum sköttum á tei með því að henda þremur skipsförmunum af því í sjóinn.

Arabar höfðu fremst af verið einir um kaffirækt, en hina nýja eftirspurn beggja vegna Atlandshafsinns gerði kaffi að verðmætri verslunarvöru fyrir nýlenduveldin. Hollendingar komust yfir græðlinga á seinni hluta sautjándu aldar og hófu ræktun á eyjunni Jövu í Indónesíu og á Malbar á Indlandi.[19] Það var svo 1714 að borgarstjóri Amsterdam gaf frakkakonungnum Louis XIV kaffiplöntu í vináttuheimsókn þess síðarnefnda. Liðsforingi úr franska sjóhernum að nafni Gabriel de Clieu komst yfir græðlinga af þeirri plöntu sem hann fór með til eyjarinnar Maritinique í Karabíska hafinu. Ræktunin þar gekk vonum framar og er allt kaffi í Vestur-Indíum, Brasilíu og Kólumbíu komið af kaffiplöntunum í Martinique. [20] Fyrsti kaffibúgarður Brasilíu var svo stofnaður árið 1727 og landið varð fljótt helsta kaffiræktunar land heimsins og er það enn. Innan við öld síðar var kaffi orðið hversdagsdrykkur, í stað þess að vera forréttindi aðalsinns, og nú í dag er kaffi drukkið af miljónum manns um allan heim.[19]

Vinsælir kaffidrykkir[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]

  1. 1,0 1,1 [1], Ukers, William H. All About Coffee. New York, The Tea and Coffee Trade Journal Company, 1922. Web Books Puplishing.
  2. [2], Davis, Aaron P., and Franck Rakotonasolo. "Two New Species of Coffea L. (Rubiaceae) from Northern Madagascar." Adansonia 3rd ser. 23.2 (2001): 337-45. Adansonia. Muséum National D'Histoire Naturelle. Web. 1 Nov. 2010.
  3. 3,0 3,1 [3]"Botanical Aspects." International Coffee Organization. Web. 01 Nov. 2010.
  4. [4]"Coffee Plant: Arabica and Robusta - CoffeeResearch.org." Coffee - CoffeeResearch.org. Ed. Michael Griffin. Web. 01 Nov. 2010.
  5. [5]"International Coffee Organization - Field Processing." International Coffee Organization - News From The Executive Director. Web. 01 Nov. 2010.
  6. [6]Davis, Kenneth. "The Tanzanian Peaberry Mystery." Virtual Coffee - The Hottest Online Coffee Zine! Web. 31 Oct. 2010.
  7. [7],"Where the Coffee Is Grown" Coffee Beans. Web. 01 Nov. 2010.
  8. [8],"Ecology." International Coffee Organization - News From The Executive Director. Web. 01 Nov. 2010.
  9. 9,0 9,1 9,2 [9],"Coffee Environment: Climate Conditions for Growing Coffee Beans." Coffee - CoffeeResearch.org. Web. 01 Nov. 2010.
  10. [10],Robinson, Richard. "Coffee, Botany of." Biology. 2002. Encyclopedia.com. 31 Oct. 2010
  11. 11,0 11,1 [11], "Field Processing." International Coffee Organization. Web. 01 Nov. 2010.
  12. [12],"Coffee Processing." CoffeeResearch.org. Ed. Michael Griffin. Web. 01 Nov. 2010.
  13. [13], Coffee Wet Mill Process. Prod. Zion Pictures. Narr. Edwin Martinez Jr. YouTube. Sisters Coffee Company, 26 Feb. 2010. Web. 01 Nov. 2010.
  14. Weinberg, Bennett Alan; Bealer, Bonnie K (2001). The world of caffeine : the science and culture of the world's most popular drug. New York: Routledge. ISBN 0-415-92722-6. <http://books.google.com/?id=Qyz5CnOaH9oC&pg=PA3&dq=coffee+goat+ethiopia+Kaldi>.
  15. "Ethiopian Coffee." Selamta. Volume 13, Number 2. Apr.-June 1996. Ethiopian Airlines. Web. 16 Jan. 2011. <http://www.selamta.net/Ethiopian Coffee.htm>.
  16. "The Mystical Coffee of the Sufi Dervishes." Lavazza. Lavazza. Web. 16 Jan. 2011. <http://www.lavazza.com/corporate/en/coffeculture/legends/article_0006.html>.
  17. Meyers, Hannah. „„Suave Molecules of Mocha“ - Coffee, Chemistry, And Civilization.“ New Partisan. New Partisan - A Journal of Politics, Culture and the Arts, 3 July 2005. Web. 16 Jan. 2011. <http://www.newpartisan.com/home/suave-molecules-of-mocha-coffee-chemistry-and-civilization.html>
  18. Rooney, Sean. „Clement VIII: The Pope Who Popularized Coffee in Europe.“ Associated Content from Yahoo! Yahoo! Inc., 5 Feb. 2008. Web. 16 Jan. 2011. <https://archive.is/20130628111620/www.associatedcontent.com/article/574455/clement_viii_the_pope_who_popularized.html?cat=37>.
  19. 19,0 19,1 "The History Of Coffee." National Coffee Association. National Coffee Association of U.S.A., Inc. Web. 16 Jan. 2011. <http://www.ncausa.org/i4a/pages/index.cfm?pageid=68>.
  20. "Legends of Coffee #1 – Captain Gabriel De Clieu." Galla Coffee Blog - Brewing Coffee at Home. Galla Coffee, 31 Oct. 2010. Web. 16 Jan. 2011. <http://www.gallacoffeeblog.co.uk/legends-coffee-1-captain-gabriel-de-clieu/>.

Tengt efni[breyta | breyta frumkóða]

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist