Blý

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita
  Tin  
Þallín Blý Bismút
  Ununquadín  
Lead-2.jpg
Efnatákn Pb
Sætistala 82
Efnaflokkur Tregur málmur
Eðlismassi 11340,0 kg/
Harka 1,5
Atómmassi 207,2 g/mól
Bræðslumark 600,61 K
Suðumark {{{Suðumark}}} K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Fast efni
Lotukerfið

Blý er frumefni með efnatáknið Pb (frá latneska heitinu fyrir blý, Plumbum) og er númer 82 í lotukerfinu. Það er mjúkur, eitraður, þungur og þjáll tregur málmur. Blý er bláhvítt þegar það er nýsneitt en tærist yfir í daufgráan lit við snertingu vð loft vegna oxunar. Blý er notað í byggingargerð, blýsýrurafgeyma, byssukúlur, og sem partur af lóðmálmum, pjátri og sambræðanlegum málmblöndum. Blý hefur hæstu atómtölu allra stöðugra efna. Þess má þó geta að Bismút-209 hefur helmingunartíma uppá milljarðfaldan þekktan aldur alheimsins og er stundum talið sem stöðugt. Þessvegna er bismút stundum talið hafa hæsta atómtölu allra stöðugra efna.

Sagan[breyta | breyta frumkóða]

Talið er að blý hafi verið notað af mönnum frá því 3000 f.Kr. Blý var mikið notað í hinu forna Rómaveldi. Fornrómverjar notuðu blý i vatnslagnir. Þess vegna er enska orðið fyrir pípara „plumber“ leitt af latneska orðinu „plumbum“ sem þýðir blý. Á miðöldum varð blý notað í þök, kistur, tanka og ræsi og í styttur og skraut. Blý var einnig notað í samskeyti á gluggaskreytingum í kirkjugluggum. Í dag er blý ekki mikið notað í þök lengur þar sem það er of dýrt og þar sem eituráhrif blýs eru orðin vel þekkt og þess í stað er meira notað af kopar og plastefnum eins og polythane. Lög af blýi eru notuð innan í tanka með tærandi vökvum eins og sýru sem myndi tæra sundur aðra málma. Þar sem blý er þyngri málmur en járn eða kopar er hann notaður til að gera suma hluti sem eiga að vera þungir en meiga ekki taka mikið pláss svosem sökkla við veiðar og stígvél hjá köfurum. [1]

Víngerðarmenn í fornrómverska ríkinu vildu ekki nota neitt annað en blý í sín áhöld. Þeir notuðu áhöld úr blýi til að kremja vínber. Þeir kröfðust þess að nota blý-potta eða blý-klædda koparkatla því þeir ryðguðu minna og töldu þá gefa betra bragð. Í Rómversku uppskriftabókinni Apician, sem hefur að geyma uppskriftir taldar frá 1-5. öld, eru fimmtungur hinna 450 uppskrifta bragðbættar með blýi. Fólk notaði frá miðöldum sýru frá blýi eða „blýsykrur“ eins og það var kallað sem sætuefni í mat eða vín. Blý var enn fremur notað við borðbúnað, skartgripi og smápeninga. Að lokum komu fram margar eiturverkanir á fólki og suma Rómverja grunaði að tenging væri milli málmsins og krankleikanna en venjurnar breyttust aldrei og sumir sagnfræðingar telja að margir af heldri borgurum Rómar hafi þjáðst af blýeitrun[2]

Tengt efni[breyta | breyta frumkóða]

Heimildir[breyta | breyta frumkóða]

  1. C. Kinder Preventing Lead Poisoning in Children, "[1]", Yale-New Haven Teachers Institute, án dags.
  2. E. Sohn et al, án dags, "[2]", Dartmouth,nóvember 2010.
  Þessi efnafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.