1994
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1994 (MCMXCIV í rómverskum tölum) var 94. ár 20. aldar sem hófst á laugardegi samkvæmt gregoríska tímatalinu.
Efnisyfirlit
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
Janúar[breyta | breyta frumkóða]
- 1. janúar - Bandaríkin, Kanada og Mexíkó stofnuðu Fríverslunarsamtök Norður-Ameríku (NAFTA).
- 1. janúar - Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið tók gildi.
- 1. janúar - Virðisaukaskattur á matvælum lækkaði úr 24.5% í 14%.
- 2. janúar - Flestir sjómenn Íslands fóru í verkfall, sem stóð í 14 daga þangað til Alþingi setti bráðabirgðalög sem gerðu verkfallið ólöglegt.
- 4. janúar - Mikill samdráttur varð í herstöðinni á Keflavíkurflugvelli. F-15 orrustuþotum var fækkað úr 12 í 4, hlustunar- og miðunarstöð lokað og hermönnum fækkað um tæplega 400 í áföngum.
- 10. janúar - Þyrlusveit Varnarliðsins bjargaði sex skipverjum af Goðanum í fárviðri í Vöðlavík við Reyðarfjörð. Einn maður fórst.
- 15. janúar - Hjúkrunarfélag Íslands og Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga voru sameinuð í Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.
- 15. janúar - R-listinn ákvað sameiginlegt framboð minnihlutaflokkanna í Reykjavík.
- 21. janúar - Lorena Leonor Bobbitt var sýknuð af ákæru um að hafa skorið reðurinn af eiginmanni sínum, John Wayne Bobbitt, og taldi dómurinn að stundarbrjálæði hefði átt sök á verknaðinum.
Febrúar[breyta | breyta frumkóða]
- 5. febrúar - Keflavík, Njarðvík og Hafnir samþykktu í kosningum að sameinast í eitt sveitarfélag sem síðar hlaut nafnið Reykjanesbær.
- 12. febrúar - Vetrarólympíuleikarnir 1994 hófust í Lillehammer í Noregi.
- 17. febrúar - Apple QuickTake, fyrstu stafrænu myndavélarnar fyrir almennan markað sem hægt var að tengja við tölvu, komu á markað.
- 26. febrúar - Magnús Scheving varð Evrópumeistari í þolfimi.
Mars[breyta | breyta frumkóða]
- 1. mars - Namibía tók við stjórn Walvis Bay og nokkurra eyja við ströndina frá Suður-Afríku.
- 6. mars - Moldóvar höfnuðu sameiningu við Rúmeníu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
- 10. mars - Þyngsti dómur sem Hæstiréttur Íslands hefur dæmt féll, tuttugu ára fangelsi fyrir manndráp, en dómþoli hafði tvisvar orðið manni að bana.
Apríl[breyta | breyta frumkóða]
- 7. apríl - Borgarastyrjöldin í Rúanda: Fjöldamorð á Tútsum hófust í Kígalí í Rúanda.
- 15. apríl - Marrakesssamningurinn var undirritaður í Marokkó.
- 16. apríl - Steingrímur Hermannsson og Eiríkur Guðnason voru skipaðir seðlabankastjórar.
- 17. apríl - Gerðarsafn, listasafn Kópavogs, var opnað.
- 24. apríl - Magnús Scheving náði öðru sæti á heimsmeistaramóti í þolfimi, sem haldið var í Japan.
- 30. apríl - Árbæjarlaug var opnuð.
- 30. apríl - Paul Harrington og Charlie McGettigan sigruðu Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir Írland með laginu „Rock 'N' Roll Kids“.
Maí[breyta | breyta frumkóða]
- 6. maí - Mannréttindasáttmáli Evrópu var lögtekinn á Íslandi.
- 10. maí - Nelson Mandela varð forseti Suður-Afríku.
- 21. maí - Í grein í Lesbók Morgunblaðsins lagði Sturla Friðriksson til að Íslendingar veldu holtasóley sem þjóðarblóm.
- 28. maí - Sveitarstjórnarkosningar á Íslandi 1994: Reykjavíkurlistinn sigraði í kosningum til borgarstjórnar í Reykjavík og hratt meirihluta Sjálfstæðisflokksins, sem þá hafði staðið í tólf ár.
Júní[breyta | breyta frumkóða]
- júní - Deilur milli Norðmanna og Íslendinga vegna veiða á Svalbarðasvæðinu.
- 4. júní - Hljómsveitin HAM hélt fræga lokatónleika á Tunglinu undir yfirskriftinni HAM lengi lifi.
- 9. júní - Síldin kom aftur í íslenska landhelgi eftir 26 ára hlé.
- 11. júní - Íslandssíld var landað í fyrsta skipti í 27 ár, löndunin fór fram á Neskaupstað.
- 11. júní - Sveitarfélögum á Íslandi fækkaði um 18 er 25 sveitarfélög sameinuðust í 7 ný.
- 17. júní - 50 ára afmæli Lýðveldisins Íslands var fagnað á Þingvöllum.
- 17. júní - Jóhanna Sigurðardóttir lagði grunninn að stjórnmálaflokknum Þjóðvaka með orðunum „minn tími mun koma“.
- 19. júní - Björk Guðmundsdóttir hélt sína fyrstu tónleika á Íslandi eftir að hún öðlaðist heimsfrægð.
- 30. júní - Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Bíódagar, var frumsýnd.
Júlí[breyta | breyta frumkóða]
- 5. júlí - Yasser Arafat varð fyrsti forseti palestínsku heimastjórnarinnar.
- 16. júlí - Borgarastríðinu í Rúanda lauk.
- 16. júlí - Halastjarnan Shoemaker-Levy 9 hóf að rekast á Júpíter.
- 30. júlí- Langferðabíll með 32 erlenda ferðamenn valt út af veginum fyrir ofan Bólstaðarhlíð í Húnavatnssýslu. Fjölmargir slösuðust og ellefu voru lagðir á sjúkrahús.
Ágúst[breyta | breyta frumkóða]
- 27. ágúst - Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Bíódagar, hlaut Amanda-kvikmyndaverðlaunin, sem eru norræn. Mat dómnefndar var að myndin væri þjóðleg og alþjóðleg í senn.
- 30. ágúst - Fyrsta breiðskífa bresku hljómsveitarinnar Oasis, Definitely Maybe, kom út.
- 31. ágúst - Lengsta skák í skáksögu Íslands var til lykta leidd með jafntefli eftir 183 leiki. Jóhann Hjartarson og Jón Garðar Viðarsson tefldu á Skákþingi Íslands í Vestmannaeyjum.
September[breyta | breyta frumkóða]
- 15. september - Helgi Áss Grétarsson varð heimsmeistari í skák í flokki 20 ára og yngri og varð jafnframt stórmeistari í skák.
- 17. september - Óperan Vald örlaganna var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu og sungu Kristján Jóhannsson og Elín Ósk Óskarsdóttir aðalhlutverkin.
- 22. september - Fyrsti þáttur sjónvarpsþáttaraðarinnar Vinir fór í loftið á NBC í Bandaríkjunum.
- 23. september - Á Öxnadalsheiði var afhjúpað minnismerki í tilefni af því að bundið slitlag var komið á allan þjóðveginn á milli Reykjavíkur og Akureyrar.
- 29. september - Íslenska kvikmyndin Skýjahöllin var frumsýnd.
- 30. september - 302 metra löng brú yfir Kúðafljót tekin í notkun. Við það styttist hringvegurinn um 8 kílómetra.
Október[breyta | breyta frumkóða]
- 8. október - Donovan, breskur dægurlagasöngvari, skemmti í Þjóðleikhúskjallaranum.
- 13. október - Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar voru veitt í fyrsta sinn og hlaut þau Helgi Ingólfsson.
- 14. október - Bandaríska kvikmyndin Pulp Fiction var frumsýnd.
- 19. október - Nýtt skip, Guðbjörg, kom til Ísafjarðar. Var það fullkomnasta skip íslenska veiðiflotans og kostaði um hálfan annan milljarð króna.
- 19. október - Bandaríska kvikmyndin Búðarlokur var frumsýnd.
- 25. október - Andrew Wiles gaf út tvær stærðfræðilegar ritgerðir, sem endanlega sönnuðu síðustu reglu Fermats.
Nóvember[breyta | breyta frumkóða]
- 1. nóvember - Geimfarinu Wind var skotið á loft.
- 12. nóvember - Guðmundur Árni Stefánsson baðst lausnar sem félagsmálaráðherra og tók Rannveig Guðmundsdóttir við embættinu.
- 13. nóvember - Svíar kusu að ganga í ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu.
- 22. nóvember - Leikjatölvan Sega Saturn kom út í Japan.
Desember[breyta | breyta frumkóða]
- 1. desember - Þjóðarbókhlaðan var opnuð í Reykjavík.
- 29. desember - Alþingi samþykkti að Ísland skyldi verða eitt af stofnríkjum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Ódagsettir atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- Þýska hljómsveitin Rammstein var stofnuð.
- Íslenska hljómsveitin Botnleðja var stofnuð.
- Enska hljómsveitin Muse var stofnuð.
- EFTA-dómstóllinn var stofnaður.
- Ítalska hljómsveitin Lacuna Coil var stofnuð.
- Rússneska hljómsveitin Splean var stofnuð.
- Viðskiptablaðið var stofnað á Íslandi.
- Tímaritið Proxima Thulé var stofnað í París.
- Ítalska hljómsveitin Tre allegri ragazzi morti var stofnuð.
- Eurostar-háhraðalestarnetið var stofnað í Frakklandi.
- USB-staðallinn var fyrst kynntur.
- CANTAT-3-sæstrengurinn var tekinn í notkun.
- Ástralska hljómsveitin Savage Garden var stofnuð.
- Sósíalistafélagið var stofnað á Íslandi.
- Bandaríska vefverslunin Amazon.com var stofnuð.
- Breska hljómsveitin Spice Girls var stofnuð.
- South Central-býlið var stofnað í Los Angeles.
- Bandaríska leitarvélin Yahoo! var stofnuð.
- Kanadíska hljómsveitin Godspeed You! Black Emperor var stofnuð.
- Finnska hljómsveitin The Rasmus var stofnuð.
- Vefforritunarmálið PHP var búið til.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 11. febrúar - Dominic Janes, bandarískur leikari.
- 23. febrúar - Dakota Fanning, bandarísk leikkona.
- 1. mars - Justin Bieber, kanadískur söngvari og leikari.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1. janúar - Stefán Íslandi, íslenskur óperusöngvari (f. 1907).
- 20. janúar - Matt Busby, skoskur knattspyrnustjóri (f. 1909).
- 11. febrúar - Paul Feyerabend, austurrískur heimspekingur (f. 1924).
- 19. febrúar - Dagur Sigurðarson, íslenskt skáld (f. 1937).
- 26. febrúar - Bill Hicks, bandarískur uppistandari (f. 1961).
- 4. mars - John Candy, bandarískur leikari (f. 1950).
- 9. mars - Kjartan Ólafsson, íslenskur rithöfundur (f. 1905).
- 21. mars - Alfred Jolson, kaþólskur biskup á Íslandi (f. 1928).
- 3. apríl - Jérôme Lejeune, franskur erfðafræðingur (f. 1926).
- 5. apríl - Kurt Cobain, bandarískur tónlistarmaður (f. 1967).
- 7. apríl - Albert Guðmundsson, íslenskur knattspyrnu- og stjórnmálamaður (f. 1923).
- 15. apríl - Kristján frá Djúpalæk, íslenskt skáld (f. 1916).
- 22. apríl - Richard Nixon, Bandaríkjaforseti (f. 1913).
- 1. maí - Ayrton Senna, brasilískur ökuþór (f. 1960).
- 10. maí - John Wayne Gacy, bandarískur raðmorðingi (f. 1942).
- 19. maí - Jacqueline Bouvier Kennedy, bandarísk forsetafrú (f. 1929).
- 21. maí - Giovanni Goria, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1943).
- 29. maí - Erich Honecker, austurþýskur stjórnarherra (f. 1912).
- 2. júní - Henry Mancini, bandarískt tónskáld (f. 1924).
- 1. júlí - Óskar Aðalsteinn Guðjónsson, íslenskur rithöfundur (f. 1919).
- 2. júlí - Andrés Escobar, kólumbískur knattspyrnumaður (f. 1967).
- 8. júlí - Kim Il Sung, norðurkóreskur einræðisherra (f. 1912).
- 12. júlí - David Malcolm Lewis, enskur fornfræðingur (f. 1928).
- 6. ágúst - Giovanni Spadolini, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1925).
- 6. ágúst - Domenico Modugno, ítalskur söngvari og lagahöfundur (f. 1928).
- 14. ágúst - Elias Canetti, búlgarskur rithöfundur (f. 1905).
- 26. ágúst - Baldur Georgs Takács, íslenskur búktalari (f. 1927).
- 17. september - Karl Popper, austurrísk-enskur vísinda- og stjórnmálaheimspekingur (f. 1902).
- 15. nóvember - Hallvard Magerøy, norskur textafræðingur (f. 1916).
- 18. nóvember - Lúðvík Jósepsson, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1914).
- 28. nóvember - Jeffrey Dahmer, bandarískur raðmorðingi (f. 1960).
- 15. desember - Sigurður H. Pétursson, íslenskur gerlafræðingur (f. 1907)