2012
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 2012 (MMXII í rómverskum tölum) var 12. ár 21. aldar samkvæmt gregoríska tímatalinu og hlaupár sem hófst á sunnudegi.
Efnisyfirlit
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
Janúar[breyta | breyta frumkóða]
- 31. janúar - Sprengja var sprengd við Hverfisgötu 6, skamman spöl frá Stjórnarráðshúsinu. Karlmaður sást flýta sér af vettvangi í hvítum sendibíl og náðust myndir af manninum og bílnum á öryggismyndavélar og varð það til þess að gerandinn náðist.
Febrúar[breyta | breyta frumkóða]
- 8. febrúar - Verneglobal, fyrsta „græna“ gagnaverið í heiminum var tekið í notkun á Ásbrú. Það var jafnframt fyrsta atvinnuskapandi verkefnið sem fór af stað á Suðurnesjum eftir hrun.
Mars[breyta | breyta frumkóða]
- 2. mars - Íslenska kvikmyndin Svartur á leik var frumsýnd.
Apríl[breyta | breyta frumkóða]
- 23. apríl - Dómur féll í Landsdómsmálinu, Alþingi gegn Geir H. Haarde, með sakfellingu fyrir hluta ákæruliða.
- 25. apríl - Fyrsti kvenbiskup íslensku þjóðkirkjunnar, Agnes M. Sigurðardóttir, var kjörin.
Maí[breyta | breyta frumkóða]
- 7. maí - Vladimír Pútín var kjörinn forseti Rússlands í annað sinn.
- 13. maí - Manchester City vann Englandsmeistaratitilinn í knattspyrnu með sigri á Queens Park Rangers.
- 15. maí - François Hollande tók við embætti forseta Frakklands.
- 18. maí - Bandaríska kvikmyndin Beðið eftir barni var frumsýnd.
- 26. maí - Sænska söngkonan Loreen sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2012 með laginu „Euphoria“.
Júní[breyta | breyta frumkóða]
- 6. júní - Venus gekk fyrir sólu frá jörðu séð.
- 7. júní - Landssamband íslenskra útvegsmanna efndi til fjöldamótmæla á Austurvelli vegna fyrirhugaðra breytinga á kvótakerfinu.
- 10. júní - Bandaríska teiknimyndin Hin hugrakka var frumsýnd.
- 16. júní - Aung San Suu Kyi, baráttukona fyrir mannréttindum og lýðræði í Myanmar, flutti ræðu í Ósló og þakkaði fyrir friðarverðlaun Nóbels, sem hún fékk árið 1991.
- 30. júní - Forsetakosningar voru haldnar á Íslandi. Frambjóðendur voru sex talsins. Sitjandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, vann yfirburðasigur.
Júlí[breyta | breyta frumkóða]
- 1. júlí - Flugmálastjórn Íslands, Vegagerðin og Siglingastofnun Íslands voru sameinuð í eina Farsýslu. Ári síðar var nafninu breytt í Samgöngustofu.
- 1. júlí - Spánn vann Evrópukeppnina í knattspyrnu 2012 með 4-0 sigri á Ítalíu.
- 13. júlí - Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun hófst í Rio de Janeiro í Brasilíu.
- 15. júlí - Lagið „Gangnam Style“ með kóreska tónlistarmanninum Psy var birt á YouTube.
- 27. júlí – Sumarólympíuleikarnir 2012 voru settir í London
Ágúst[breyta | breyta frumkóða]
- 24. ágúst - Dómur var kveðinn upp í Osló yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik
September[breyta | breyta frumkóða]
- 21. september - Íslenska kvikmyndin Djúpið var frumsýnd.
Október[breyta | breyta frumkóða]
- 20. október - Haldin var þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi um tillögur stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá fyrir Ísland.
- 22. október - Fjórða plata Taylor Swift, Red, kom út.
- 23. október - Íslenska flugfélagið WOW air tók yfir rekstur Iceland Express.
- 29. október - Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti að gera Palestínuríki að áheyrnarríki í stað áheyrnarfulltrúa.
Nóvember[breyta | breyta frumkóða]
- 24. nóvember - Nýr stjórnmálaflokkur, Píratar, var stofnaður á Íslandi.
Desember[breyta | breyta frumkóða]
- 21. desember - Nýtt tímabil hófst samkvæmt tímatali Azteka
- 31. desember - Fyrsta skuldbindingartímabili Kýótósáttmálans lauk
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 16. janúar - Sigursteinn Gíslason, íslenskur knattspyrnumaður (f. 1968).
- 6. febrúar - Antoni Tàpies, katalónskur myndlistarmaður (f. 1923).
- 11. febrúar - Whitney Houston, bandarísk söngkona (f. 1963).
- 12. febrúar - Jón Þórarinsson, íslenskt tónskáld (f. 1917).
- 13. febrúar - Jónas H. Haralz, íslenskur hagfræðingur (f. 1919).
- 19. febrúar - Renato Dulbecco, ítalskur veirufræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1914).
- 1. mars - Steingrímur Jóhannesson, íslenskur knattspyrnumaður (f. 1973).
- 1. mars - Lucio Dalla, ítalskur tónlistarmaður (f. 1943).
- 10. mars - Frank Sherwood Rowland, bandarískur efnafræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1927).
- 10. mars - Jean Giraud, franskur myndasöguhöfundur (f. 1938).
- 5. apríl - Bingu wa Mutharika, forseti Malavi (f. 1934).
- 11. apríl - Ahmed Ben Bella, forseti Alsír (f. 1918).
- 20. apríl - Ásgeir Þór Davíðsson, íslenskur athafnamaður (f. 1950).
- 28. apríl - Matilde Camus, spænskt skáld (f. 1919).
- 17. maí - Donna Summer, bandarísk söngkona (f. 1948).
- 20. maí - Robin Gibb, breskur söngvari (f. 1949).
- 28. maí - Jónas Þorbjarnarson, íslenskt skáld (f. 1960).
- 30. maí - Andrew Fielding Huxley, breskur lífeðlisfræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1917).
- 2. júní - Kathryn Joosten, bandarísk leikkona (f. 1939).
- 5. júní - Ray Bradbury, bandarískur rithöfundur (f. 1920).
- 17. júní - Rodney King, bandarískur leigubílstjóri (f. 1965).
- 8. júlí - Ernest Borgnine, bandarískur kvikmyndaleikari (f. 1917).
- 24. júlí - John Atta Mills, ganverskur stjórnmálamaður (f. 1944).
- 14. ágúst - Svetozar Gligorić, júgóslavneskur skákmaður (f. 1923).
- 19. ágúst - Tony Scott, breskur kvikmyndaleikstjóri (f. 1944).
- 20. ágúst - Phyllis Diller, bandarísk leikkona (f. 1917).
- 25. ágúst - Neil Armstrong, bandarískur geimfari (f. 1930).
- 30. ágúst - Magnús Bjarnfreðsson, íslenskur sjónvarpsfréttamaður (f. 1934).
- 21. september - Sven Hassel, danskur rithöfundur (f. 1917).
- 6. október - J.J.C. Smart, ástralskur heimspekingur (f. 1920).
- 15. október - Norodom Sihanouk, konungur Kambódíu (f. 1922).
- 21. október - George McGovern, bandarískur stjórnmálamaður (f. 1922).
- 24. október - Jens Tómasson, íslenskur jarðfræðingur (f. 1925).
- 29. október - Auður Laxness, íslensk handverkskona (f. 1918).
- 5. nóvember - Elliott Carter, bandarískt tónskáld (f. 1908).
- 23. nóvember - Larry Hagman, bandarískur leikari (f. 1931).
- 25. nóvember - Lars Hörmander, sænskur stærðfræðingur (f. 1931).
- 26. nóvember - Joseph Murray, bandarískur læknir og nóbelsverðlaunahafi (f. 1919).
- 5. desember- Oscar Niemeyer, brasilískur arkitekt (f. 1907).
- 11. desember - Ravi Shankar, indverskur tónlistarmaður (f. 1920).
- 30. desember - Rita Levi-Montalcini, ítalskur taugalíffræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1909).