30. desember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
30. desember er 364. dagur ársins (365. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 1 dagur er eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1352 - Stefano Aubert varð Innósentíus 6. páfi.
- 1880 - Svo hörð og langvarandi frost voru, að gengið var á ís frá Reykjavík og upp á Kjalarnes.
- 1883 - Fyrstu kirkjuhljómleikar á Íslandi voru haldnir í dómkirkjunni í Reykjavík.
- 1922 - Ríkin Rússland, Hvíta-Rússland, Úkraína og Suður-Kákasus mynduðu Sovétríkin.
- 1924 - Edwin Hubble tilkynnti um uppgötvun annarra stjörnuþoka.
- 1935 - Eldur kom upp á jólatrésskemmtun í samkomuhúsi í Keflavík og fórust tíu manns.
- 1980 - Patrick Gervasoni, frönskum manni, sem sagður var landflótta, var vísað af landi brott eftir mjög miklar deilur.
- 2006 - Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, var tekinn af lífi í Bagdad.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 39 - Títus, keisari Rómar (d. 81).
- 1673 - Akmeð 3. Tyrkjasoldán (d. 1736).
- 1865 - Rudyard Kipling, enskur rithöfundur (d. 1936).
- 1910 - Paul Bowles, bandarískur rithöfundur (d. 1999).
- 1928 - Stefán Aðalsteinsson, íslenskur búfræðingur.
- 1932 - Paolo Villaggio, ítalskur leikari.
- 1935 - Omar Bongo, forseti Gabon (d. 2009).
- 1947 - Jeff Lynne, tónlistarmaður (The Move, Electric Light Orchestra, Traveling Wilburys)
- 1958 - Óðinn Gunnarsson, Útgerðarmaður Siglufirði.
- 1961 - Ben Johnson, kanadískur frjálsíþróttamaður.
- 1966 - Bjarni móhíkani, tónlistarmaður (d. 2005).
- 1970 - María Pálsdóttir, íslensk leikkona.
- 1973 - Ato Boldon, frjálsíþróttamaður frá Trínidad og Tóbagó
- 1975 - Tiger Woods, bandarískur golfíþróttamaður.
- 1975 - Haukur Gröndal, íslenskur tónlistarmaður.
- 1982 - Erna Björk Sigurðardóttir, íslensk knattspyrnukona.
- 1984 - LeBron James, bandarískur NBA körfuboltamaður.
- 1986 - Ellie Goulding, bresk söngkona.
- 1988 - Rakel Hönnudóttir, íslensk knattspyrnukona.
- 1989 - Ryan Sheckler, bandarískur atvinnuhjólabrettamaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1592 - Innósentíus 9. páfi.
- 1691 - Robert Boyle, írskur efnafræðingur (f. 1627).
- 1934 - Lárus H. Bjarnason, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1866).
- 1941 - Maggi Júlíusson Magnús, læknir og búfjárræktaráhugamaður (f. 1886).
- 1947 - Alfred North Whitehead, enskur stærðfræðingur (f. 1861).
- 1982 - Reynir Örn Leósson, íslenskur aflraunamaður (f. 1939).
- 2006 - Saddam Hussein, forseti Íraks (f. 1937).
|