29. nóvember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
29. nóvember er 333. dagur ársins (334. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 32 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1314 - Loðvík 10. varð konungur Frakklands.
- 1780 - Jósef 2. erfði Habsborgarríki móður sinnar, Maríu Teresu af Austurríki.
- 1899 - Knattspyrnuliðið Real Madrid var stofnað.
- 1906 - Frumflutt var verkið Rís þú unga Íslands merki, ljóð Einars Benediktssonar við lag Sigfúsar Einarssonar í Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík.
- 1930 - Kommúnistaflokkur Íslands var stofnaður eftir klofning úr Alþýðuflokknum.
- 1945 - Sósíalíska sambandslýðveldið Júgóslavía var stofnað.
- 1947 - Sameinuðu þjóðirnar stungu upp á skiptingu Palestínu í tvö ríki áður en stjórn Breta lyki þar en arabar voru eindregið mótfallnir þeim tillögum.
- 1953 - Samtök herskálabúa voru stofnuð í Camp Knox í Vesturbæ Reykjavíkur.
- 1974 - Þjóðverjar settu löndunarbann á íslensk skip í þýskum höfnum vegna landhelgisdeilunnar.
- 1986 - Lottó, happdrætti rekið af Íslenskri getspá, hóf göngu sína.
- 1987 - Félagið Ísland-Palestína var stofnað.
- 1988 - Fimleikafélagið Rán var stofnað í Vestmannaeyjum.
- 1991 - Kvikmyndahúsakeðja Árna Samúelssonar tók upp nafnið Sambíóin.
- 2011 - Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu um viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1338 - Lionel af Antwerpen, hertogi af Clarence (d. 1368).
- 1835 - Cixi keisaraekkja, einvaldur í Kína (d. 1908).
- 1857 - Theodor Escherich, bæverskur barnalæknir og örverufræðingur (d. 1911).
- 1924 - Erik Balling, danskur kvikmyndaleikstjóri (d. 2005).
- 1931 - Wallace Broecker, bandarískur jarðefnafræðingur.
- 1932 - Jacques Chirac, Frakklandsforseti.
- 1959 - Rahm Emanuel, bandarískur stjórnmálamaður.
- 1961 - Kim Delaney, bandarísk leikkona.
- 1973 - Ryan Giggs, velskur knattspyrnumaður.
- 1974 - Gunnlaugur Jónsson, íslenskur knattspyrnumaður.
- 1977 - Paul Goodison, enskur siglingamaður.
- 1980 - Hreiðar Levý Guðmundsson, íslenskur handknattleiksmaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1211 - Páll Jónsson, biskup í Skálholti.
- 1268 - Klemens 4. páfi.
- 1314 - Filippus 4. Frakkakonungur (f. 1268).
- 1330 - Roger Mortimer, fyrsti jarlinn af March og í raun stjórnandi Englands 1327-1330 (f. 1287).
- 1378 - Karl 4., keisari hins Heilaga rómverska ríkis (f. 1316).
- 1530 - Thomas Wolsey, enskur kardínáli og stjórnmálamaður (f. 1473).
- 1626 - Ernst von Mansfeld, þýskur herforingi (f. um 1580).
- 1627 - John Ray, enskur líffræðingur (d. 1705).
- 1632 - Friðrik 5. kjörfursti í Pfalz (f. 1596).
- 1643 - Claudio Monteverdi, ítalskt tónskáld (f. 1567).
- 1666 - Ólafur Ólafsson lærði karl, skólameistari á Hólum.
- 1682 - Róbert Rínarfursti, herforingi í Ensku borgarastyrjöldinni (f. 1619).
- 1694 - Marcello Malpighi, ítalskur læknir (f. 1628).
- 1699 - Patrick Gordon, skoskur herforingi í her Rússakeisara (f. 1635).
- 1780 - María Teresa af Austurríki, keisaradrottning í hinu Heilaga rómverska ríki (f. 1717).
- 1907 - Árni Thorsteinson, landfógeti og alþingismaður (f. 1828).
- 1924 - Giacomo Puccini, ítalskt tónskáld (f. 1858).
- 1986 - Cary Grant, enskur leikari (f. 1904).
- 2001 - George Harrison, gítarleikari í Bítlunum (f. 1943).
- 2007 - Eyjólfur Jónsson, sundkappi og lögregluþjónn (f. 1925).
- 2008 - Jørn Utzon, danskur arkitekt (f. 1918).
|