2. febrúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
2. febrúar er 33. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 332 dagar (333 á hlaupári) eru eftir af árinu. Kyndilmessa er þennan dag og er nafn hennar dregið af blysförum eða kertaskrúðgöngu á hreinsunarhátíð Maríu guðsmóður.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1555 - Ágsborgarþingið hófst.
- 1626 - Karl 1. var krýndur Englandskonungur.
- 1653 - Nýja Amsterdam (síðar New York-borg) fékk borgarréttindi.
- 1709 - Alexander Selkirk var bjargað af eyðieyju, björgun sem síðar varð grunnurinn að bókinni Róbinson Krúsó eftir Daniel Defoe.
- 1878 - Grikkir lýstu yfir stríði á hendur Tyrkjum.
- 1883 - Sex manns fórust í snjóflóði á bæinn Stekk í Njarðvík í Borgarfirði eystra.
- 1920 - Frakkland hertók Memel.
- 1933 - Adolf Hitler leysti þýska þingið upp.
- 1935 - Lygamælirinn var prófaður í fyrsta skipti af Leonard Keeler.
- 1943 - Síðustu hersveitir nasista gáfust upp fyrir Sovétmönnum í orustunni um Stalíngrad.
- 1979 - Sid Vicious dó af of stórum skammti af heróíni.
- 1982 - Sýrlensk stjórnvöld réðust á bæinn Hama og drápu þúsundir.
- 1983 - Samþykkt var á Alþingi að mótmæla ekki hvalveiðibanni Alþjóða hvalveiðiráðsins.
- 1988 - Halldór Halldórsson varð fyrstur Íslendinga til að fá ígrædd hjarta og lungu í átta klukkustunda aðgerð í London.
- 1989 - Síðustu hersveitir Sovétmanna yfirgáfu Afganistan og bundu þannig endi á níu ára styrjöld milli landanna.
- 1990 - F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku, lofaði að láta Nelson Mandela lausan.
- 1990 - Þjóðarsátt um kaup og kjör gekk í gildi með það að markmiði að ná niður verðbólgu og tryggja atvinnuöryggi.
- 1998 - mbl.is, fréttavefur Morgunblaðsins, var opnaður sem sérstakur fjölmiðill eftir að hafa verið vefútgáfa blaðsins í nokkur ár.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1502 - Damião de Góis, portúgalskur heimspekingur (d. 1574).
- 1522 - Lodovico Ferrari, ítalskur stærðfræðingur (d. 1565).
- 1700 - Johann Christoph Gottsched, þýskur rithöfundur (d. 1766).
- 1714 - Gottfried August Homilius, þýskt tónskáld (d. 1785).
- 1845 - Torfhildur Hólm, íslenskur rithöfundur (d. 1918).
- 1882 - James Joyce, írskur rithöfundur (d. 1941).
- 1891 - Antonio Segni, ítalskur stjórnmálamaður (d. 1972).
- 1901 - Stefán A. Pálsson, stórkaupmaður og formaður Knattspyrnufélagsins Fram (d. 1989).
- 1905 - Ayn Rand, rússneskur rithöfundur (d. 1982).
- 1912 - Ólafur Björnsson, íslenskur hagfræðingur (d. 1999).
- 1927 - Stan Getz, bandarískur tónlistarmaður (d. 1991).
- 1927 - Gísli Halldórsson, íslenskur leikari (d. 1998).
- 1928 - Ciriaco De Mita, ítalskur stjórnmálamaður.
- 1931 - Walter Burkert, þýskur fornfræðingur.
- 1940 - David Jason, enskur leikari.
- 1947 - Farrah Fawcett, bandarísk leikkona (d. 2009).
- 1963 - Eva Cassidy, bandarísk söngkona (d. 1996).
- 1965 - Kjartan Guðjónsson, íslenskur leikari.
- 1966 - Robert DeLeo, bandarískur tónlistamaður (Stone Temple Pilots).
- 1972 - Dana International, ísraelsk söngkona.
- 1975 - Ieroklis Stoltidis, grískur knattspyrnumaður.
- 1976 - James Hickman, breskur sundmaður.
- 1977 - Shakira, kólumbísk söngkona.
- 1981 - Emre Aydın, tyrkneskur söngvari.
- 1987 - Giuseppe Rossi, ítalskur knattspyrnumaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1594 - Giovanni Pierluigi da Palestrina, ítalskt tónskáld (f. 1525).
- 1660 - Govert Flinck, hollenskur málari (f. 1615).
- 1769 - Klemens 13. páfi (f. 1693).
- 1877 - Gísli Konráðsson fræðimaður (f. 1787).
- 1907 - Dmitri Mendelejev, rússneskur efnafræðingur (f. 1834).
- 1956 - Charles Grapewin, bandarískur leikari (f. 1869).
- 1969 - Boris Karloff, enskur leikari (f. 1887).
- 1970 - Bertrand Russell, breskur heimspekingur, stærðfræðingur, rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1872).
- 1979 - Sid Vicious, enskur tónlistarmaður (Sex Pistols) (f. 1957).
- 1987 - Castilho, brasilískur knattspyrnumaður (f. 1927).
- 1987 - Alistair MacLean, skoskur rithöfundur (f. 1922).
- 1996 - Gene Kelly, bandarískur dansari, leikari og leikstjóri (f. 1912).
- 1997 - Sanford Meisner, bandarískur leikari (f. 1904).
- 2004 - Bernard McEveety, bandarískur leikstjóri (f. 1924).
- 2005 - Max Schmeling, þýskur hnefaleikamaður (f. 1905).
- 2008 - Joshua Lederberg, bandarískur sameindalíffræðingur (f. 1925).
- 2014 - Philip Seymour Hoffman, bandariskur leikari (f. 1967).
|